top of page

Auglýsingahlé Billboard: Opin samkeppni um myndlistarverk

508A4884.JPG

fimmtudagur, 22. september 2022

Auglýsingahlé Billboard: Opin samkeppni um myndlistarverk

Billboard efnir til opinnar samkeppni um myndlistarverk í almenningsrými í samstarfi við Y gallery og Listasafn Reykjavíkur. Dagana 1.–3. janúar 2023 verður Auglýsingahlé á yfir 450 skjáum Billboard um alla Reykjavíkurborg. Þessi tími verður helgaður sýningu á nýju verki eftir myndlistarmann sem valinn verður úr hópi umsækjenda. Listamaðurinn fær 1.000.000 kr greiddar fyrir verkið sem verður að sýningartíma loknum gefið í safneign Listasafns Reykjavíkur. Jafnframt er stefnt að því að verkið verði áfram sýnilegt í almenningsrými í borginni að loknu Auglýsingahléi Billboard.

Verkið verður sýnt á yfir 450 skjáum um alla Reykjavíkurborg, bæði skjáum í strætóskýlum og stórum skjáum (6x4m) við götur. Ekki er hægt að sýna hreyfimyndir eða myndskeið en mögulegt er að skipta um mynd á 8 sek. fresti.

Umsækjendur eru beðnir um að senda inn tillögur fyrir kl. 16:00 þann 15. október 2022. Umsóknin skal innihalda stuttan texta um fyrirhugað verk ásamt 1–5 myndum af verkinu (útskýringarmyndir, skissur, ljósmyndir o.s.frv.). Lokaútfærsla verksins verður síðan ákveðin í samstarfi við Y gallery.

Dómnefnd skipuð fulltrúa frá Y gallery, Listasafni Reykjavíkur, Billboard og SÍM fer yfir innsendar tillögur og tilkynnir um val sitt stuttu eftir að umsóknarfresti lýkur.

Upplýsingar um samkeppnina og umsóknareyðublöð er að nálgast á heimasíðu Y gallerís; www.ygallery.is

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn

SAMBAND
ÍSLENSKRA
MYNDLISTARMANNA

Hafnarstræti 16, 101 Reykjavík, Ísland

Skrifstofan er opin virka daga frá kl 12 -16

Sími/ Tel.: +354 551 1346
Email: sim@sim.is

Kt. 551283-0709

Samfélagsmiðlar

  • Facebook
  • Instagram
logo_white_edited.png

© Samband íslenskra myndlistarmanna, 2024

bottom of page