top of page

Auglýsing um styrki frá letterstedtska sjóðnum

508A4884.JPG

miðvikudagur, 1. febrúar 2023

Auglýsing um styrki frá letterstedtska sjóðnum

Letterstedtski sjóðurinn hefur það hlutverk að styrkja norrænt samstarf og samstarf við Eystrasaltsríkin á sviði rannsókna, lista, vísinda og fræða. Sjóðurinn kallar hér með eftir umsóknum um styrki vorið 2023 með umsóknarfresti til 15. febrúar nk.

Þeir einir koma til greina sem lokið hafa námi og hyggja á frekari rannsóknir eða þekkingarleit á starfssviði sínu, svo sem við rannsóknir á vísinda- eða fræðastofnun eða með þátttöku í fundum eða ráðstefnum.

1.
Íslandsdeild Letterstedtska sjóðsins veitir styrki vegna ferða frá Íslandi til Norðurlanda og til Eystrasaltsríkjanna. Styrkupphæð jafngildir lægsta flugfargjaldi milli viðkomandi landa, en hvorki eru veittir styrkir til ferða innan landanna né til uppihalds.

Umsóknareyðublað og upplýsingar er að finna á vefsíðu sjóðsins:
www.letterstedtska.org/anslag/anslagsutlysning/
Þessum umsóknum má skila á íslensku.

Nánari upplýsingar veita:
Bryndís Sverrisdóttir, ritari, í síma 8530602 eða bryndis.sverris@gmail.com
Þór Magnússon, formaður, í síma 8921731 eða thor@thjodminjasafn.is

2.
Aðalstjórn Letterstedtska sjóðsins (Letterstedtska föreningens huvudstyrelse) í Stokkhólmi veitir einnig styrki að upphæð 10-50.000 SEK til ráðstefnuhalds, til að kosta heimsóknir fyrirlesara, til vísindaferða, prentunar, þýðinga og netútgáfu. Þá eru veittir styrkir til útgáfu doktorsritgerða og rannsóknarstarfa. Forsenda styrkveitinga er að umrædd starfsemi hafi samnorrænt gildi eða tilvísun. Þá geta samnorrænar stofnanir sótt um styrki til bóka- og tækjakaupa.

Umsóknareyðublað og upplýsingar er að finna á: www.letterstedtska.org/anslag/anslagsutlysning/
Umsóknir til aðalstjórnar skal senda á sænsku, dönsku eða norsku.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn

SAMBAND
ÍSLENSKRA
MYNDLISTARMANNA

Hafnarstræti 16, 101 Reykjavík, Ísland

Skrifstofan er opin virka daga frá kl 12 -16

Sími/ Tel.: +354 551 1346
Email: sim@sim.is

Kt. 551283-0709

Samfélagsmiðlar

  • Facebook
  • Instagram
logo_white_edited.png

© Samband íslenskra myndlistarmanna, 2024

bottom of page