top of page

Auglýsing - Samkeppni um útilistaverk

508A4884.JPG

miðvikudagur, 8. apríl 2026

Auglýsing - Samkeppni um útilistaverk

Hafnir Ísafjarðarbæjar efna til hugmyndasamkeppni um útilistaverk sem staðsett verður miðsvæðis á Ísafirði í göngufæri frá höfninni. Listaverkið skal vera þess eðlis að það laði að sér gesti sem sækja Ísafjörð heim og verði myndastopp sem fangar staðaranda Ísafjarðarbæjar.

Markmið samkeppninnar er að fá fram tillögu að útilistaverki sem útfæra má í fullri stærð og verður kennileiti fyrir Ísafjarðarbæ og órjúfanlegur hluti af umhverfi staðarins.

Samkeppnin mun fara fram samkvæmt samkeppnisreglum SÍM Sambands íslenskra myndlistarmanna. Samkeppnin er „Opin samkeppni í einu þrepi: þátttakendur skila inn fullunnum tillögum eins og tilgreint er í samkeppnislýsingu“ með nafnleynd og er öllum heimilt að senda inn tillögur að listaverki. Senda skal inn hugmyndir að verkinu á stafrænum formi sem sýnir það frá mismunandi hliðum. Tillögunni skal fylgja greinargerð um hugmyndina að baki verkinu, efnisval og uppbyggingu, ásamt kostnaðaráætlun.

Óska þarf eftir keppnislýsingu fyrir 15. maí 2026 til að öðlast þátttökurétt í samkeppninni.

Þátttakendur skila inn fullunnum tillögum eins og tilgreint er í samkeppnislýsingu fyrir miðnætti 15. september 2026

Áherslur dómnefndar eru:

Styrkleiki heildarhugmyndar og listrænt gildi tillögu.
Að verkið sé eftirminnilegt og fangi staðaranda Ísafjarðarbæjar
Að verkið verði úr varanlegu efni sem sé vandað og endingargott
Að viðhaldskostnaður listaverksins sé í lágmarki.

Að samkeppni lokinni mun dómnefnd, skipuð af verkkaupa og fulltrúum SÍM, velja eitt listaverk til útfærslu og uppsetningar, samkvæmt nánara samkomulagi við viðkomandi listamann. Ekki verða greidd verðlaun fyrir valda tillögu, heldur samið sérstaklega við listamanninn um útfærslu verksins. Heildarupphæð listaverksins er 15.000.000 m.kr og er höfundargreiðsla innifalin í þeirri upphæð.

Ósk um keppnislýsingu og fyrirspurnir skulu sendar á netfangið: trunadarmadur@sim.is fyrir 15. maí 2026.

Tillögurnar skal síðan senda í tölvupósti til trúnaðarmanns samkeppninnar á netfangið: trunadarmadur@sim.is

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page