ART67: Valgerður Jakobsdóttir

fimmtudagur, 5. júní 2025
ART67: Valgerður Jakobsdóttir
OPNUN: ART67: Valgerður Jakobsdóttir. Velkomin laugardaginn 7. júní kl. 13.00.
Valgerður er líffræðingur að mennt og starfaði um langt árabil sem kennari í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Hún stundaði nám í Myndlistarskóla Kópavogs á árunum 2013-2017 undir handleiðslu Önnu Gunnlaugsdóttur. Að því loknu sótti hún þrjú námskeið hjá Þuríði Sigurðardóttur (2018-2022). Síðan í ágúst 2023 hefur hún verið meðlimur í Art & Success, nethópi sem nýtur leiðsagnar Pamelu Caughey.
Valgerður hélt sína fyrstu sjálfstæðu sýningu í Skúmaskoti 2024.
„Myndirnar mínar eru unnar í olíu. Lífræn og geómetrísk form mynda margvísleg sögusvið og eru yrkisefnin ýmist lífræns eðlis, svo sem haf og öldur, flóð, fuglar og blóm eða ólífræn form eins og vasar og skálar“
Sýningin stendur til loka mars, er sölusýning og eru allir hjartanlega velkomnir.
Art67 er opið sem hér segir: Mánudaga - föstudaga 11:00 - 18:00 Laugardaga 11:00 - 17:00 Sunnudaga 13:00 – 16:00