top of page

Art67: Jóna Bergdal - Gestalistamaður aprílmánaðar

508A4884.JPG

miðvikudagur, 6. apríl 2022

Art67: Jóna Bergdal - Gestalistamaður aprílmánaðar

ART67: Jóna Bergdal

Gestalistamaður aprílmánaðar er Jóna Bergdal búsett á Akureyri. Jóna lauk námi við Myndlistaskólann á Akureyri 2003. Verkin hennar eru innblásin af íslenskri náttúru og hafa fuglar skipað þar stóran sess. Hún hefur haldið margar einkasýningar og tekið þátt í mörgum samsýningum bæði hér á landi og erlendis meðal annars á Ítalíu, Spáni og í Finnlandi. Jóna hefur fengist við ýmis konar tækni í verkum sínum sem eru unnin með akrýl, olíu eða vatnslitum.

Sýningin stendur til loka apríl, er sölusýning og eru allir hjartanlega velkomnir.
Art67 er opið sem hér segir:
Mánudaga - föstudaga 11:00 - 18:00
Laugardaga 11:00 - 17:00
Sunnudaga 13:00 – 16:00
www.art67.is
instagram: #galleryart67

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page