Arkir: Brotabrot

föstudagur, 10. apríl 2026
Arkir: Brotabrot
Bókverkasýning í Safnahúsi Borgarfjarðar
Bjarnabraut 4-6, Borgarnesi
Opnun:
11.04.2026 kl 14:00
Sýningin stendur frá: 11.04 - 02.05.2026
Opið alla virka daga
Mánudaga til föstudaga frá kl. 10-17;
laugardaga frá kl. 11-14; lokað á sunnudögum.
Á sýningunni BROTABROT sýnir listahópurinn ARKIR fjölbreytt úrval bókaverka. Á sýningunni leitast listamennirnir við að brjóta upp hið klassíska form bókarinnar og finna nýjar leiðir til að vinna með bókina á óhefðbundinn hátt. Listamennirnir nýta sér bakgrunn sinn í hönnun, prentlist, textíl og blönduðum miðlum til að ögra hefðbundnum aðferðum, færa mörk og kanna hversu langt má ganga í að umbreyta bók þannig að hún kallist ennþá bók eða bókverk.
Verkin sameina mismunandi listform en í grunninn er unnið með pappír og pappírsbrot. Bók er í eðli sínu nytjahlutur, en með sýningunni er leikið með þrívítt formið og frumþætti bóka: síður, arkir og spjöld. Með margbreytilegum bókverkum má bæði ná til þeirra sem lesa texta en ekki síður þeirra sem lesa í myndir og form. Sýningin á þannig erindi við margra.
UM ARKIR
Listahópurinn ARKIR hefur starfað allt frá árinu 1998. Hópurinn telur nú níu meðlimi sem sinna öllu jafna margvíslegri listsköpun á sviði málara- og grafíklistar, textíllistar, ritlistar, myndlýsinga og hönnunar. Frá árinu 2005 hafa ARKIR haldið fjölda bókverkasýninga og tekið þátt í samsýningum hérlendis og erlendis. Síðastliðin ár hefur hópurinn haldið sýningar árlega og þegið boð um þátttöku í stærri og smærri samsýningum. Stakir meðlimir hafa einnig verið virkir þátttakendur í bókverkasýningum erlendis.
Frá upphafi hefur hópurinn starfað saman með það að markmiði að efla bókverkagerð sem listgrein, ræða, skoða og sýna bókverk og kanna margvíslegar birtingarmyndir bókverka. Listamenn hópsins nálgast bókverk jafnt á jafnt fagurfræðilegum sem hugmyndafræðilegum forsendum. Í bókverkunum er jöfnum höndum unnið með tungumál og myndmál, form og hugmyndir, handverk og hefðir, sögu og samfélagsþætti. Hugtakið bókverk nær yfir mikla breidd listaverka, en í verkum sínum leitast ARKIR við að gera tilraunir og sameina í forminu list og leik.
Styrkur hópsins er fjölbreytni og samvinna, en mikil áhersla er lögð á öflugt listrænt starf og vinnu að vönduðum og metnaðarfullum sýningum. ARKIR finna ávinning af samtali og samstarfi og deila þessari ástríðu sem margslungið bókverkið hefur upp á að bjóða. Hópurinn hefur frá fyrstu tíð unnið að þátttöku í alþjóðlegum sýningum og því að eiga í samstarfi við aðra listamenn sem nýta sér bókverkið sem listmiðil.
