top of page

Anne Herzog / Andy Warhol á Borgarbókasafninu Gerðubergi

508A4884.JPG

fimmtudagur, 22. febrúar 2024

Anne Herzog / Andy Warhol á Borgarbókasafninu Gerðubergi

Franska listakonan Anne Herzog opnar sýningu á verkum sínum í sýningarsal Borgarbókasafnsins Gerðubergi laugardaginn 24. febrúar kl. 14:00. Titill sýningarinnar er Anne Herzog Andy Warhol.

Anne Herzog er fædd 1984 í Frakklandi. Hún starfar sem listakona og listkennari og hefur haldið einkasýningar víða um veröld, m.a. í New York, Berlín, Trínidad og Tobago og á nokkrum stöðum á Íslandi og í Frakklandi.

Síðastliðin tuttugu ár hefur Snæfellsnes átt stóran sess í huga Anne. Hún hefur búið þar og starfað nokkrum sinnum síðan 2004. Anne vinnur með náttúruna við Snæfellsjökul í verkum sínum, s.s. jörð, sand, smásteina og annað sem finna má í umhverfi jökulsins. Á sýningunni eru málverk, teikningar og vídeóverk sem Anne hefur unnið að á Snæfellsnesi á síðustu misserum. En hvaðan sprettur titill sýningarinnar?

Nafnið Anne er með 4 stafi eins og nafnið Andy og eftirnafnið Herzog er með 6 stafi eins og eftirnafnið Warhol. Bókstafurinn „o“ er númer fimm í eftirnöfnum beggja. Þessir tveir listamenn sækja bæði innblástur sinn í poppmenningu eða „hráa list“. Andy Warhol (6. ágúst 1928 – 22. febrúar 1987) var bandarískur myndlistarmaður, rithöfundur og kvikmyndagerðarmaður. Hann var einn af frumkvöðlum popplistar í Bandaríkjunum á 6. áratugnum. Anne sækir jafnframt innblástur í verk listakonunnar Mierle Laderman Ukeless, sem er með aðsetur í New York borg. Hún er einkum þekkt fyrir femínísk og þjónustumiðuð listaverk sem tengja hugmyndina um ferli í hugmyndalist við heimilislegt og borgaralegt „viðhald“.

Sýningin stendur til 6. apríl n.k. og er opin virka daga frá kl. 9:00-18:00 og á laugardögum frá 11:00-17:00.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn

SAMBAND
ÍSLENSKRA
MYNDLISTARMANNA

Hafnarstræti 16, 101 Reykjavík, Ísland

Skrifstofan er opin virka daga frá kl 12 -16

Sími/ Tel.: +354 551 1346
Email: sim@sim.is

Kt. 551283-0709

Samfélagsmiðlar

  • Facebook
  • Instagram
logo_white_edited.png

© Samband íslenskra myndlistarmanna, 2024

bottom of page