Anna Rún Tryggvadóttir: Jarðvegur / Earth

föstudagur, 14. ágúst 2026
Anna Rún Tryggvadóttir: Jarðvegur / Earth
Við bjóðum þér og þínum velkomin á opnun einkasýningar Önnu Rúnar Tryggvadóttur, Jarðvegur / Earth laugardaginn næstkomandi, 15. ágúst á milli 17:00 - 19:00 í Þulu, Marshallhúsinu.
Úr texta Becky Forsythe um verkin:
Hvað gerist þegar líkaminn verður að leið til að lesa landslagið? Ekki sem myndlíking, heldur sem skynfæri. Í teikningum Önnu Rúnar er landið ekki einungis séð; það er búið í því, það er minning og það er skynjun. Líkaminn verður mælikvarði á upplifun náttúrunnar, rétt eins og landslagið verður skrásetning á hreyfingu, varnarleysi og breytingum. Verkin gefa til kynna ákveðna tegund líkamlegrar þekkingar – skilning sem verður til í gegnum skynjun, nálægð, minni og lifaða reynslu fremur en hlutlausa, fjarlæga athugun.
Anna Rún Tryggvadóttir (1980) starfar í Reykjavík og Berlín. Hún lauk BFA frá Listaháskóla Íslands (2004) og MFA frá Concordia-háskóla í Montreal (2014). Hún samþættir náttúrulega ferla í verkum sínum til að mynda með segulvirku litardufti í málverkaseríunum -Pólar (2024) og Ókerfisbundin Kortlagning (2021) og með salti í vatnslitaseríunni -Snertipunktar (2022-) Anna Rún hefur sýnt verk sín á einkasýningum í Listasafni Íslands (2024), Till Richter Museum í Þýskalandi (2025), Listasafni Reykjavíkur (2017 og 2021), Kunstlerhaus Bethanien (2019), Gallery Guðmundsdóttir Berlin (2023 & 2022) ásamt fjölda samsýninga alþjóðlega og á íslandi. Hún var handhafi Listasjóðs Guðmundu 2021 og Styrktarsjóðs Guðmundu Andrésdóttir 2012.
//
We warmly welcome you and your guests to the opening of Anna Rún Tryggvadóttir's solo exhibition Earth / Jarðvegur, this Saturday, August 15 at Þula, Marshall House, from 5 - 7 PM.
Anna Rún Tryggvadóttir (b. 1980) lives and works in Reykjavík and Berlin. She received her BFA from the Iceland University of the Arts in 2004 and her MFA from Concordia University in Montreal in 2014. She incorporates natural processes into her work, using magnetically activated pigment powder in the painting series Poles (2024) and Unsystematic Mapping (2021), and salt in the ongoing watercolour series Points of Contact (2022–). Anna Rún has presented her work in solo exhibitions at the National Gallery of Iceland (2024), Till Richter Museum in Germany (2025), the Reykjavík Art Museum (2017 and 2021), Künstlerhaus Bethanien (2019), and Gallery Guðmundsdóttir in Berlin (2022 and 2023), as well as in numerous group exhibitions in Iceland and internationally. She was the recipient of the Guðmunda Art Fund in 2021 and the Guðmunda Andrésdóttir Grant in 2012.
From text by Becky Forsythe about the work:
What happens when the body becomes a way of reading the landscape? Not as a metaphor, but as a sensory instrument. In Anna Rún's drawings, land is not simply seen; it is inhabited, remembered and felt. The body becomes a measure of environmental experience, just as the landscape becomes a record of movement, vulnerability and change. The works suggest a form of somatic knowledge—an understanding accumulated through sensation, proximity, memory, and lived experience rather than detached observation.
