top of page

Anna Júlía Friðbjörnsdóttir: RÍM kl. 15:00-17:00

508A4884.JPG

miðvikudagur, 24. apríl 2024

Anna Júlía Friðbjörnsdóttir: RÍM kl. 15:00-17:00

Anna Júlía Friðbjörnsdóttir sýnir ný verk sem tengjast almanaksfræðum og aldagömlum tímamælingum. Hún teflir saman náttúrulegum og manngerðum kerfum með andstæðum í efnum og aðferðum.

Verkin Sumardagurinn fyrsti, Fyrsti vetrardagur, Konudagur, og Bóndadagur tilheyra dagbókarseríu (journal series) og eru skrásetningar dagsljósstunda ákveðinna dagsetninga með blaðgulli.Sólúr (65. breiddargráða norður) er einnig hluti af röð verka sem hvert og eitt er gert fyrir mismunandi breiddargráður og staði á norðurhveli jarðar. Skúlptúrinn er afsteypa af þrjú þúsund ára gamalli rostungstönn af sér íslenskum, útdauðum rostungastofni, notuð er sem grunnur fyrir hreyfanlega sólarklukku.

Sýningaropnun sumardaginn fyrsta, 25. apríl kl. 15:00 í Gallery Kverk, Garðastræti 35, 101 Reykjavík. Sýningin stendur til 25. maí 2024.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn

SAMBAND
ÍSLENSKRA
MYNDLISTARMANNA

Hafnarstræti 16, 101 Reykjavík, Ísland

Skrifstofan er opin virka daga frá kl 12 -16

Sími/ Tel.: +354 551 1346
Email: sim@sim.is

Kt. 551283-0709

Samfélagsmiðlar

  • Facebook
  • Instagram
logo_white_edited.png

© Samband íslenskra myndlistarmanna, 2024

bottom of page