Anna Álfheiður Brynjólfsdóttir: Ásýndir / Appearances

sunnudagur, 15. mars 2026
Anna Álfheiður Brynjólfsdóttir: Ásýndir / Appearances
La Boutique Design, Mýrargata 18.
13.03. - 25.04. 2026
Í verkum sínum kannar Anna Álfheiður hvernig málverk getur færst af fletinum og inn í rýmið og hvernig skynjun, fjarlægð og hreyfing verða óaðskiljanlegir þættir í mótun verksins. Verkin verða til í lögum og mótast í handunninni, efnislegri uppbyggingu þar sem yfirborð og rými fléttast saman. Í þessari vinnu nálgast hún málverkið sem efni fremur en myndflöt og leyfir uppbyggingu þess að þróast í rýmislega nærveru.
Samhliða rannsakar hún mörk málverks og annarra efnislegra nálgana, þar sem verkin geta á köflum nálgast textíl og skúlptúr án þess að tilheyra þeim alfarið. Í nýjustu verkum sínum leitast hún við að kanna samhverfu og ljós sem skynjanlegt jafnvægisástand, þar sem kyrrð, fókus og miðja verða mótvægi við hreyfingu og breytilega skynjun í rýminu, og veltir jafnframt fyrir sér djúpstæðri mannlegri þörf fyrir jafnvægi og að snúa aftur að kjarna, fjarri stöðugu áreiti samtímans.
Sýningin stendur til og með 25. apríl og er opin frá kl. 11-18 alla virka daga og kl. 11-16 á laugardögum. Sýningin verður sett upp bæði í verslunarrýminu og galleríinu á neðri hæðinni í La Boutique Design.
Sýningin er framhald af Samhverfu-seríunni, sem Anna Álfheiður hefur verið að kanna frá byrjun árs 2025. Verkin hreyfast á mörkum málverks og rýmis, þar sem skynjun og fjarlægð móta upplifunina, og má lýsa þeim sem eins konar skúlptúrískum textílmálverkum.
Anna Álfheiður Brynjólfsdóttir (f. 1977) útskrifaðist með B.A.-gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2009. Hún hefur haldið níu einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga. Ásýndir / Appearances er níunda einkasýning hennar.
