top of page

Alistair Macintyre MIRRORS WITH LONG MEMORIES í Grafíksalnum

508A4884.JPG

miðvikudagur, 21. júní 2023

Alistair Macintyre MIRRORS WITH LONG MEMORIES í Grafíksalnum

Sýning Alistair Macintyre - Mirrors with Long Memories verður opnuð í Grafíksalnum 22. júní kl 17:00. Verið öll hjartanlega velkomin. Sýningin stendur til 9.júlí 2023

Frá því um síðustu aldamót hef ég þróað tímatengt vinnuferli sem byggir á bráðnun íss, og samhliða skoðað undirstöður og aðferðir hliðrænnar ljósmyndar. Sýningin gaumgæfir ýmsa snertifleti sem finna má hér á milli, en í báðum tilfellum er það tíminn sem kallar fram endanlega mynd. Í nýrri verkum vísa ég einkum til myndraða Étienne Jules Marey og Eadweard Muybridge. Ljósmyndin er endurunnin; rist og mótuð í járni og komið fyrir í ísklumpi. Hér falla til sem setlög augnabliks kennileiti í sögu ljósmyndunar.

Við ísbráðnunina botnfellur járnið á þykkan pappírinn og samspil skapast við polla ísvatnsins. Efnafræðilegur núningur milli járns, vatns og hvata glæðir kviknandi form lífi og njörvar þau niður í tíma, líkt og þegar ljósmynd kemur fram á pappír í framköllunarvökva. Eins og skuggi sem mjakast út úr þokunni birtist hin endanlega niðurstaða - hægfara í gegnum ísinn sem þynnist og verður æ gegnsærri – og á einhverjum dögum og vikum styrkist ryðskánin og útlínur skýrast.

Eftir situr patína sem, - líkt og þegar ljósmynd verður til -, birtir hinn þrívíða heim í formi myndar á tvívíðum fleti.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page