top of page

Albeck: Heima - myndlistarsýning

508A4884.JPG

fimmtudagur, 7. september 2023

Albeck: Heima - myndlistarsýning

Myndlistarmaðurinn Aron Leví Beck opnar sýna sjöttu einkasýningu kl: 17:00 laugardaginn 9. september að Óseyri 1c, Reyðarfirði (þar sem Austmat var).

Sýningin fékk styrk frá Stjórn Menningarstofu og Safnastofnunar og stuðning frá Menningarstofu Fjarðabyggðar.

Myndlistarmaðurinn Aron Leví Beck fæddist í Reykjavík árið 1989. Hann er málarameistari og þegar óbilandi sköpunarþörfin læddist upp að honum, mörgum árum eftir útskrift, leitaði hann aftur í þann grunn. Þar fann hann bæði þekkingu og handbragð sem nýtist honum við samtvinnun ólíkra þátta sköpunarferlisins.
Uppfinningasemi og frelsi er í forgangi en viðfangsefni myndanna eru fjölbreytilegt. Þegar Aron Leví málar snýst allt um augnablikið og núið. Hann gefur sköpuninni frjálsan tauminn, leyfir efninu að taka stjórn og smám saman öðlast verkið eigið líf.

Aron Leví leitast í hvívetna við að miðla þeim hughrifum sem listin færir honum, veri þau ánægjuleg eða þyngri í meðförum. Stundum veit hann ekki nákvæmlega af hverju hann málar, en hann veit það eitt að svarið skiptir ekki jafn miklu máli og spurningin.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn

SAMBAND
ÍSLENSKRA
MYNDLISTARMANNA

Hafnarstræti 16, 101 Reykjavík, Ísland

Skrifstofan er opin virka daga frá kl 12 -16

Sími/ Tel.: +354 551 1346
Email: sim@sim.is

Kt. 551283-0709

Samfélagsmiðlar

  • Facebook
  • Instagram
logo_white_edited.png

© Samband íslenskra myndlistarmanna, 2024

bottom of page