top of page

Akademia: Öllum til heilla - Samtal um samfélagslistir

508A4884.JPG

þriðjudagur, 15. febrúar 2022

Akademia: Öllum til heilla - Samtal um samfélagslistir

Verið hjartanlega velkomin á viðburðaröðina ÖLLUM TIL HEILLA samtal um samfélagslistir

ReykjavíkurAkademían, í samstarfi við Öryrkjabandalag Íslands, Listahátíð í Reykjavík, Listaháskóla Íslands, Borgarleikhúsið, Reykjavíkurborg og List án landamæra, stendur vorið 2022 fyrir viðburðaröðinni ÖLLUM TIL HEILLA samtali um samfélagslistir. Þar er sjónum beint að mikilvægi samfélags- og þátttökulista (e. Community and Participatory Art) við inngildingu allra í samfélagið, lista sem leyfa óvæntum röddum að berast og bregða upp myndum af lífum þeirra sem búa við hvers kyns skerðingar og jaðarsetningu.

Við hvetjum öll sem eru áhugasöm um umbreytingar- og inngildingarmátt listanna til að taka virkan þátt í viðburðaröðinni.

Skráning og aðgengi

Viðburðirnir eru fimm talsins, öllum er streymt en upphafs- og lokaviðburðir eru einnig í sal. Vinsamlegast skráið ykkur á akademia.is/ollum til að fá aðgang að streymum og umræðum. Efnið, þýtt og textað á íslensku/ensku, rittúlkað og túlkað á íslenskt táknmál, verður aðgengilegt að streymi loknu á sömu síðu. Verið líka með í umræðuhópi á FB .

Upphafviðburður Hvað eru samfélaglistir? fer fram í Borgarleikhúsinu 16. febrúar kl. 15:00. Aðgengur er ókeypis en nauðsynlegt er að skrá sig á Tix.is. Þarftu pláss fyrir hjólastól, rit- eða táknmálstúlkun? Láttu vita á akademia.is/ollum.

HVAÐ ERU SAMFÉLAGSLISTIR?
16. febrúar kl. 15:00-17:00 á Stóra sviði Borgarleikhússins og í beinni útsendingu.
François Matarasso, rithöfundur og samfélagslistamaður
A Restless Art – Why participation won, and why it matters
Hin kvika list – hvers vegna þátttaka skiptir máli
Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir fötlunarlistamaður og sviðshöfundur og Ásrún Magnúsdóttir danshöfundur:
Go for it girl
Kýldu á það, stelpa

Gestgjafarnir Björg Árnadóttir, rithöfundur og félagi í ReykjavíkurAkademíunni og Jóhanna Ásgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Listar án landamæra, leiða samtal í sal og á neti.

LISTSKÖPUN OG SAMVINNA: LEIÐIR AÐ VIRKNI OG VELFERÐ
Samvinnu- og þróunarverkefni Listaháskóla Íslands
16. mars kl. 12:00: Textuð og túlkuð útsending með umræðum á netinu.
Ný námslína á meistarastigi við listkennsludeild LHÍ hefst líkast til á þessu ári. Námið er sniðið að listamönnum, sem hafa áhuga á að styrkja félagslega þátttöku, virkni og vellíðan einstaklinga í sínum störfum. Dr. Kristín Valsdóttir, deildarforseti listkennsludeildar og kennarar við deildina, þær dr. Halldóra Arnardóttir listfræðingur og dr. Unnur Óttarsdóttir listmeðferðarfræðingur kynna aðferðir sínar og rannsóknir og Sigrún Sævarsdóttir- Griffiths, stofnandi MetamorPhonics, segir frá tónlistarstarfi sínu víða um heim.

Gestgjafi er Magnea Tómasdóttir, söngkona og stundakennari við LHÍ.

INNGILDING Í ORÐUM OG AURUM
13. apríl kl. 12:00: Textuð og túlkuð útsending með umræðum á netinu.

Orðið inngilding (e. inclusion) er mikið notað í opinberri stefnumótun og hér kynna Signý Leifsdóttir, verkefnastjóri hjá Reykjavíkurborg, Miriam Petra Ómarsdóttir Awad, sérfræðingur hjá Rannís og Erasmus+ og Hildur Jörundsdóttir, sérfræðingur í menningar- og viðskiptaráðuneytinu inngildingaráherslur í menningarstefnum stofnana sinna. Samfélagslistamenn segja á móti frá erfiðleikunum við að fjármagna verkefni sín.

Gestgjafi er Erling Jóhannesson, forseti Bandalags íslenskra listamanna.


SÖGUR AF SAMFÉLAGSLISTUM
11. maí kl. 12:00: Textuð og túlkuð útsending með umræðum á netinu:
Patrik Krebs, leikhússstjóri Heimilislausa leikhússins í Bratislava, segir frá átján ára starfsemi leikhússins og ERROR alþjóðlegrar leiklistarhátíðar heimilislausra. Rúnar Guðbrandsson leikstjóri segir frá Ethos – heimilislausu leikhúsi í Reykjavík og Edna Lupita, dans- og leiklistarkennari talar um glímu sína við geðhvörf og sýnt verður úr kvikmyndinni EKKI EINLEIKIÐ / ACTING OUT sem Ásthildur Kjartansdóttir og Anna Þóra Steinþórsdóttir gerðu um líf og list Ednu.
Gestgjafar: Björg Árnadóttir ReykjavíkurAkademíunni og Ingvi Kristinn Skjaldarson flokksleiðtogi Hjálpræðishersins í Reykjavík

LANGBORÐ: HVER ERU ÓSÝNILEG Í ÍSLENSKU LISTALÍFI?
15. júní kl. 12:00-14:00 í Klúbbi Listahátíðar, Iðnó og í beinni útsendingu
Raddir hverra heyrast ekki íslensku listalífi? Hver eru ekki meðal áhorfenda? Verk hverra sjáum við ekki og hver sjáum við ekki standa á stóru sviðunum? Hvernig geta lista- og menningarstofnanir spornað gegn mismunun jaðarlistafólks? Verið velkomin að langborði þar sem heiðarlegt samtal er eini rétturinn. Auk almennra gesta verður talsfólk ólíka jaðarhópa og fulltrúar lista- og menningarstofnana í salnum. Engin eru yfir önnur hafin og öllum frjálst að láta rödd sína heyrast.
Gestgjafarnir, Vigdís Jakobsdóttir listrænn stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík og Þuríður Harpa Sigurðardóttir formaður Öryrkjabandalags Íslands, slíta ÖLLUM TIL HEILLA með táknrænum gjörningi.


Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn

SAMBAND
ÍSLENSKRA
MYNDLISTARMANNA

Hafnarstræti 16, 101 Reykjavík, Ísland

Skrifstofan er opin virka daga frá kl 12 -16

Sími/ Tel.: +354 551 1346
Email: sim@sim.is

Kt. 551283-0709

Samfélagsmiðlar

  • Facebook
  • Instagram
logo_white_edited.png

© Samband íslenskra myndlistarmanna, 2024

bottom of page