top of page

Akademía Skynjunarinnar: Sleppa

508A4884.JPG

fimmtudagur, 2. júlí 2026

Akademía Skynjunarinnar: Sleppa

Sleppa í listsalnum hAughús í Héraðsdal í Skagafirði.

Sýningin stendur til sunnudagsins 9. ágúst og verður opin föstudaga, laugardaga og
sunnudaga frá kl. 13:00-18:00.

Sleppa er samsýning fjórtán myndlistarmanna sem mynda sjö mæðgnapör; Aðalheiður S.
Eysteinsdóttir og Brák Jónsdóttor, Borghildur Óskarsdóttir, Ósk Vilhjálmsdóttir og Hulda
Ragnhildur Hjálmarsdótti, Áslaug Thorlacius og Helga Thorlacius Finnsdóttir, Inga Sigga
Ragnarsdóttir og Katrín Agnes Ingudóttir Klar, Margrét Stefánsdóttir og Lára Margrétardóttir,
Ragnhildur Stefánsdóttir og Ragnhildur Lára Weisshappel og Rósa Gísladóttir og Þorgerður
Þórhallsdóttir.

Sýningin er unnin á vegum Akademíu Skynjunarinnar í samstarfi við Listasjóð Dungal og markar
upphaf áframhaldandi sumarsýninga í hAughúsi, nýju sýningarrými sem hefur verið þróað úr gömlu
haughúsi í Héraðsdal. Fyrsta sýning rýmisins, Vor Verk, var opnuð sumarið 2025.

Að sleppa er marglaga hugtak sem hér er helst skoðað í samhengi mæðgnasambandsins. Kannað er
hvaða umbreytandi afl felst í því að hætta að halda fast. Að gefa eftir, að sleppa. Sjö mæðgur í
myndlist koma hér saman í samtal. Með þessari samsetningu er ljósi varpað á hvernig togstreita ótta
og ástar, festu og frelsis birtist innan mæðgnasambandsins, en einnig hvernig sköpunarþráin flyst í
gegnum naflastrenginn.

Sýningin undirstrikar um leið mikilvægi áframhaldandi umfjöllunar um konur í myndlist og skapar
vettvang fyrir samtal milli kynslóða listakvenna.

Aðstandendur sýningarinnar segja viðtökur þátttakenda hafa verið einstaklega jákvæðar og að
verkefnið hafi þróast út frá áhuga á nýjum leiðum í sýningarhaldi og samstarfi.

Listasjóður Dungal var stofnaður árið 1992 af Gunnari B. Dungal í minningu foreldra sinna,
Margrétar og Baldvins P. Dungal. Sjóðurinn hefur um árabil stutt við íslenska myndlist og útgáfu
listaverkabóka. Nánari upplýsingar um Akademíu Skynjunarinnar má finna á https://
www.academyofthesenses.is/ og á samfélagsmiðlum Akademíunnar

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page