top of page
Adam Flint: Appelsínugul vinna
miðvikudagur, 24. apríl 2024
Adam Flint: Appelsínugul vinna
Á sýningunni „Appelsínugul vinna“ í Núllinu gallerí verður sjónræn og skrifleg rannsókn sýnd sem endurspeglar grafíska hönnun úr Fríríkinu Kristjaníu og sögu hennar — út frá hugmyndafræði anarkisma og kommúnu. Sýningaropnun miðvikudaginn 24. apríl kl 18:00.
Þetta verkefni umbreytir galleríinu í eins konar kommúnu utan Schengen-svæðisins þar sem gestir verða hvattir til að íhuga þau forréttindi sem fylgja því að hafa búsetu eða ríkisborgararétt á Íslandi, sem og innan Schengen-svæðisins. Með þátttökuhönnun mun verkefnið veita gestum innsýn í málefnin, hugarheim gesta sem og eigin afstöðu.
bottom of page