top of page

Aðalheiður Lilja Guðmundsdóttir rannsakar list Borghildar Óskarsdóttur

508A4884.JPG

fimmtudagur, 19. janúar 2023

Aðalheiður Lilja Guðmundsdóttir rannsakar list Borghildar Óskarsdóttur

Aðalheiður Lilja Guðmundsdóttir gegnir rannsóknarstöðu við Listasafn Reykjavíkur 2023-2024
Aðalheiður Lilja Guðmundsdóttir hefur verið valin til að gegna rannsóknarstöðu við Listasafn Reykjavíkur sem hefur það að markmiði að rannsaka hlut kvenna í íslenskri listasögu. Um er að ræða hálfa stöðu til eins árs í senn sem vinna má eftir samkomulagi. Er þetta í annað sinn af þremur sem auglýst er - en sýningin Hildur Hákonardóttir: Rauður þráður var opnuð þann 14. janúar á Kjarvalsstöðum og er afrakstur fyrstu rannsóknarstöðunnar sem Sigrún Inga Hrólfsdóttir hlaut fyrir árið 2022. Rannsóknarstaðan, sem unnin er í samstarfi við við Háskóla Íslands, hlaut þriggja ára öndvegisstyrk Safnaráðs.
Í þetta skipti bárust átta áhugaverðar umsóknir um rannsóknarstöðu við Listasafn Reykjavíkur sem auglýst var í nóvember síðastliðnum og bera þær allar með sér að tækifæri eru til rannsókna á sviði íslenskrar listasögu og á hlut kvenna í mótun hennar. Sérstakt fagráð skipað fulltrúum safnsins og Háskóla Íslands hefur nú valið úr innsendum tillögum og valdi að bjóða Aðalheiði Lilju Guðmundsdóttur stöðuna og er það rannsókn hennar á list Borghildar Óskarsdóttur sem þar liggur til grundvallar. Borghildur hefur verið virk í íslensku myndlistarsamfélagi frá því um miðja síðustu öld. Enn er mikið ósagt, óþekkt og órannsakað um konur sem hófu listferil sinn upp úr miðri síðustu öld. Borghildur er ein af þeim sem hefur unnið staðföst að listsköpun sinni í gegnum þessa áratugi og vert er að gefa gaum í listasögulegu jafnt sem femínísku samhengi. Hún vinnur verk sín í fjölbreytilega miðla listsköpunar; grafík, teikningar, texta, málverk, höggmyndir, ljósmyndun, vídeó, hljóð, bókverk, innsetningar, gjörninga og þannig mætti lengi telja. En leir, sem efniviður, er þó eins og rauður þráður í gegnum höfundarverk hennar. Rannsókn Aðalheiðar á list Borghildar lýkur með sýningu á Kjarvalsstöðu og veglegri útgáfu sýningarskrár.
Aðalheiður Lilja Guðmundsdóttir er sjálfstætt starfandi fræðimaður. Hún nam heimspeki við Háskóla Íslands og listheimspeki við Université Paris I, Panthéon–Sorbonne. Á árunum 2010–2021 starfaði hún sem lektor og fagstjóri listfræða við myndlistardeild Listaháskóla Íslands. Ásamt kennslu- og fagstjórastarfinu hefur hún sinnt ýmsum verkefnum á fagsviðum listfræða og myndlistar, þar á meðal rannsóknum, skrifum, opinberum fyrirlestrum, sýningargerð og nefndarstörfum á Norðurlöndum og í Frakklandi. Rannsóknir Aðalheiðar Lilju eru meðal annars á sviði bókverkagerðar myndlistarmanna og kynjafræða.
Rannsóknarstaða við Listasafn Reykjavíkur fyrir árið 2024 verður auglýst síðari hluta árs 2023.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page