top of page

Aðalfundur SÍM 2025 - fundargerð

508A4884.JPG

mánudagur, 26. maí 2025

Aðalfundur SÍM 2025 - fundargerð

Aðalfundur SÍM fór fram laugardaginn 24. maí s.l. á Korpúlfsstöðum. Meðal annars var farið yfir ársskýrslu stjórnar og reikninga síðasta árs.

Stjórnarkosning
Framboðsfrestur vegna stjórnarkjörs 2025 rann út 11. apríl sl. Eftirtalin framboð bárust: Helga Óskarsdóttir, Hulda Ágústsdóttir, Logi Bjarnason og Pétur Thomsen í stjórn og varastjórn. Þar sem ekki bárust fleiri framboð telst stjórnin sjálfkjörin.

Auk þeirra sitja í stjórn þau Anna Eyjólfs, formaður, Hlynur Helgason, varaformaður og Anna Rún Tryggvadóttir meðstjórnandi. Ný stjórn tekur til starfa í júní 2025. Við óskum þeim velfarnaðar í starfi sínu.

Fráfarandi úr stjórn er Elísabet Stefánsdóttir. Við þökkum henni fyrir vel unnin störf.

Ákvörðun félagsgjalda
Fundurinn samþykkti hækkun á félagsgjaldi úr 26.000 kr í 30.000 kr árið 2026.

Við viljum benda á að félagsgjaldið er frádráttarbært frá skatti á skattframtali.

Veittur er 25% hjónaafsláttur, ef báðir aðilar eru félagsmenn í SÍM.
Félagsmenn 70 ára og eldri greiða hálft félagsgjald.
Öryrkjar greiða hálft félagsgjald.

Nemendur sem útskrifast úr viðurkenndu myndlistarnámi fá frítt inn í félagið fyrsta hálfa árið eftir útskrift og miðast það við útskrift í júní. Auk þess hefur verið samþykkt að nýútskrifaðir greiði hálft félagsgjald fyrstu tvö árin.

Hér er hægt að lesa fundargerð aðalfundar í heild sinni: https://sambandislmyndlistamanna.sharepoint.com/Shared%20Documents/Forms/AllItems.aspx?id=%2FShared%20Documents%2FSkrifstofa%20S%C3%8DM%2FA%C3%B0alfundur%20S%C3%8DM%2024%2E%20ma%C3%AD%202025%2Epdf&parent=%2FShared%20Documents%2FSkrifstofa%20S%C3%8DM&p=true&ga=1

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page