6. tölublað af Myndlist á Íslandi komið út: Áhrif myndlistar 2025

fimmtudagur, 16. apríl 2026
6. tölublað af Myndlist á Íslandi komið út: Áhrif myndlistar 2025
Í blaðinu koma saman lykilraddir, gagnrýnin sjónarhorn og afgerandi augnablik sem mótuðu myndlistarsenuna á síðasta ári. Það er einnig að finna umfjöllun um tilnefningar og verðlaunahafa Íslensku myndlistarverðlaunanna 2026.
Sérstök áhersla er lögð á að skoða fyrirbærið listaverk sem boðbera hugmynda með því að rýna í hvernig skapandi hugsun tekur á sig mynd og verður sýnileg áður en hún festist í tímalínum, mælieiningum og sögulegri skráningu. Þannig varpar blaðið ljósi á lifandi tengsl listrænnar iðkunar og samfélagslegs veruleika.
Í tölublaðinu birtist ítarlegt viðtal við Ástu Fanneyju Sigurðardóttur, fulltrúa Íslands á Feneyjartvíæringnum 2026, um sköpunarferli hennar og undirbúning fyrir tvíæringinn eftir Helenu Sólveigar Aðalsteinsbur; Jonatan Habib Engqvist kynnir fyrir lesendum uppruna og tilurð einkasýningar dönsku stórstjörnunnar Larissu Sansour í Listasafni Reykjanesbæjar; Margrét Elísabet Ólafsdóttir fjallar um ævi og störf Steinu Vasulka í tilefni sýningar hennar í Listasafni Íslands og Listasafni Reykjavíkur; Daría Sól Andrews þræðir það hvernig berskjöldun birtist sem þema í fjölmörgum sýningum á kvennaárinu 2025; Edda Halldórsdóttir skýrir frá rannsóknum sínum á fantasíum Kjarvals; Eiríkur Örn Norðdahl fer með lesandann í ferðalag um myndlist á Vestfjörðum og loks tók Hólmar Hólm viðtal við Loga Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra.
Myndlist á Íslandi gegnir sérstöku hlutverki í norrænni myndlistarumræðu og nálgast tungumál sem kvikan miðil. Með tvítyngdri útgáfu eru íslenska og enska virkjaðar sem lifandi vettvangur fyrir samtal um samtímalist, þar sem þýðingar eru skilgreindar sem gagnrýnin aðferð sem opnar á tengingar milli hins staðbundna og alþjóðlega. Blaðið er því ekki aðeins árlegt yfirlit heldur vettvangur fyrir ígrundun, samtal og alþjóðlega miðlun íslenskrar samtímalistar. Hönnun tímaritsins er í höndum PSSÁ (Petter Spilde) og gefið út í samstarfi við Myndlistarráð, Myndlistarmiðstöð, Samband íslenskra myndlistarmanna, Listaháskóla Íslands og Listfræðafélag Íslands.
Blaðið er fáanlegt í öllum helstu bókaverslunum, svo sem Eymundsson og listasöfnum víðsvegar um landið. Varðandi beiðnir um eintök eða upplýsingar um sölustaði, vinsamlegast hafið samband við myndlistaislandi@gmail.com eða í síma 865 6978 (Becky Forsythe), 663 1609 (Hólmar Hólm), 789 4104 (Eva Lín Vilhjálmsdóttir).
