top of page

5. árs nemar í arkitektúr við Listaháskóla Íslands sýna afrakstur kortlagningar á höfundaverki Kjartans Sveinssonar

508A4884.JPG

fimmtudagur, 19. september 2024

5. árs nemar í arkitektúr við Listaháskóla Íslands sýna afrakstur kortlagningar á höfundaverki Kjartans Sveinssonar

KJARTAN SVEINSSON: ÍSLENZK BLOKK

Fimmtudaginn 19. september kl. 16 - 18 opnar í Epal gallerí sýning 5. árs nema í arkitektúr við Listaháskóla Íslands. Sýndur verður afrakstur kortlagningar nemenda á höfundaverki Kjartans Sveinssonar (1926-2014). Áhersla hefur verið lögð á að gera fjölbýlishúsum Kjartans skil en á sýningunni má finna líkön og teikningar af völdum byggingum á höfuðborgarsvæðinu.

Á árunum kringum 1960 fram á tíunda áratug síðustu aldar risu hátt í 10.000 íbúðir í fjölbýlishúsum eftir Kjartan. Um er að ræða svo viðamikið framlag til byggðs umhverfis hér á landi að ekki verður fram hjá því litið. Verkin voru afar umdeild meðan Kjartan lifði en nú er kominn tími á endurmat.

Ljósmyndari: Laufey Jakobsdóttir

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page