top of page
Þórarin Blöndal og Pétur Magnússon - Líkön

föstudagur, 8. ágúst 2025
Þórarin Blöndal og Pétur Magnússon - Líkön
Verið velkomin á opnun myndlistarsýningar Þórarins Blöndal og Péturs Magnússonar í Glettu á Bogarfirði Eystri
Opnun er 9. ágúst kl 15:00 - 17:00
Sýningin verður opin til 31. ágúst frá 10:00 - 16:00 á hverjum degi.
Þórarinn sýnir skúlptúra sem minna á einskonar camera obscura.
Í gegnum linsu skúlptúrsins sér áhorfandinn huglæg ferðalög sem gerast á óræðum tíma.
Pétur sýnir hreyfiverk sem er knúið af sjávarföllum til þess að framkvæma einfalda athöfn. Verkið er önnur sjávarfallavél Péturs, sú fyrri var sett upp í Óskarsbragga á Raufarhöfn árið 2024.
Marsibil Sól gerði poster.
Sýningin er styrkt af Myndlistarsjóð og Múlaþingi
bottom of page


