(Ó)sýnileiki: Tengsl við fortíð í brothættri samtíð | Að rekja brot 8. 3. 2023 kl. 12:15
![508A4884.JPG](https://static.wixstatic.com/media/b4dc0c_29a71c169fee49d6bb8d03cf6d8d115e~mv2.jpeg/v1/fill/w_410,h_410,al_c,q_80,usm_0.66_1.00_0.01,enc_auto/508A4884_JPG.jpeg)
fimmtudagur, 9. mars 2023
(Ó)sýnileiki: Tengsl við fortíð í brothættri samtíð | Að rekja brot 8. 3. 2023 kl. 12:15
Kristín Loftsdóttir prófessor í mannfræði fjallar um sýnileika og ósýnileika jaðarsettra hópa og uppgjör við kynþáttahyggju í hádegiserindi.
Fyrirlesturinn er haldinn í tengslum við sýninguna Að rekja brot (Tracing Fragments) sem nú stendur yfir í Gerðarsafni.
Á síðustu árum hefur verið aukinn krafa um réttlæti og sýnileika jaðarsettra hópa og uppgjör við kynþáttahyggju sem hluta af fortíð og samtíð.
Í fyrirlestrinum eru hugtökin sýnileiki og ósýnileiki notuð til að nálgast óuppgerða fortíð og misskiptingu í samtímanum. Hvað kemur í ljós þegar við skoðum með gagnrýnum hætti sýnileika og ósýnileika ákveðnar fortíðar og málefna samtímans?
Hvað hefur verið í forgrunni og fyrir hverja?
Aðgangur er ókeypis á viðburðinn og öll velkomin!