top of page

Finnski listamaðurinn JUKKA KORKEILA opnar sýninguna “BOOK OF DAYS”

508A4884.JPG

fimmtudagur, 3. september 2026

Finnski listamaðurinn JUKKA KORKEILA opnar sýninguna “BOOK OF DAYS”

Finnski listamaðurinn JUKKA KORKEILA opnar sýninguna “BOOK OF DAYS” á morgun miðvikudag 2. september 2026, frá kl. 17-19 í Ganginum Gallerí að Brautarholti 8, 105 Reykjavík. JUKKA KORKEILA fæddist árið 1968 í Hämeenlinna í Finnlandi. Hann býr og starfar í Berlín og Glauburg-Stockheim, Þýskalandi og að auki í Helsinki, Finnlandi. Sýningin samanstendur af málverkum á striga og pappír, ásamt klippimyndum úr veggspjöldum, í bland við málverk beint á veggi og glugga. Listamaðurinn verður viðstaddur opnunina.

Meðfylgjandi er, í dagbókarformi, hugleiðing listamannsins um listsköpun sína og tilurð verkanna á sýningunni:

Dagbók.

Vekjaraklukkan hringir klukkan 8:30 að morgni í þorpinu Glauburg-Stockheim í Efra-Hessen. Ég vakna við hliðina á Markus. Við skríðum hægt fram úr rúminu. Fyrst fer ég á klósettið, fæ mér síðan glas af vatni og bursta tennurnar. Á sólríkum og hlýjum morgni hjóla ég um hálfan kílómetra að eplatrégarði þar sem ég stunda morgun-qigong. Að því loknu kem ég heim og fæ mér morgunmat með Markus. Á miðvikudögum og föstudögum er það hafragrautur með ávöxtum og haframjólk. Við drekkum ferskan safa, kaffi og svart te.

Eftir morgunmatinn, frá klukkan 11 til 13, sinni ég daglegum verkefnum, les tölvupóst og þess háttar. Klukkan 13 borðum við hádegisverð og eftir það fer ég í vinnustofuna. Ég hjóla sex kílómetra leiðina að vinnustofunni minni í Ortenberg og stoppa í versluninni Penny til að kaupa eitthvað með kaffinu.

Ég kem á vinnustofuna um klukkan 14. Þá fæ ég mér kaffibolla og croissant, hlusta á tónlist, les eitthvað og næ ró. Um klukkan 15 legg ég mig í hálftíma, en að því loknu geri ég qigong-æfingar í 20 mínútur og bið fyrir framan helgimyndir. Eftir þessar venjur er ég tilbúinn að hefja vinnu – mála, teikna eða hvað sem dagurinn ber í skauti sér. Tilgangurinn með þessum venjum er að vernda sjálft verkið.

Það koma dagar þegar ég get ekki málað; þá verð ég að gera eitthvað annað, til dæmis að teikna. Stundum gengur málverkið vel, stundum ekki eins vel. Vinnan hvern dag kemur mér alltaf á óvart. Ég get oft ekki skipulagt hvað ég mun gera þann daginn sem ég mála. Þetta snýst um lífskraft og orku. Fyrir mig er málverkið eins og að setja saman stemnings-kollasa, dag eftir dag, þannig að hver dagur litast af ríkjandi stemningu og tilfinningum.

Ég fer á vinnustofuna fimm eða sex daga vikunnar. Virkur tími minn við málun er um það bil 3–4 klukkustundir á dag; eftir það er orkan þrotin og sú næmni sem þarf til málunar horfin. Það er auðvelt að mála of mikið, svo mikilvægt er að finna augnablikið þegar rétt er að hætta og leyfa verkinu að fá að hvíla.

Að kvöldi sný ég aftur heim. Ég hjóla um dimma akra til baka til Stockheim undir stjörnum prýddum himni. Síðan borðum við kvöldverð og horfum á kvikmynd saman, en eftir það stunda ég smá qigong-æfingar og fer að sofa. Hringrás dagsins lýkur og morgundagurinn bíður.

Fyrir sýningarrýmið „The Corridor“ (Ganginn Gallerí) hjá Helga Þorgils Friðjónssyni tek ég með mér málverk á striga og pappír ásamt veggspjalda-kollasum, og bæti við málverkum beint á veggi og glugga. Ég raða upp og endurraða, klippi og lími, mála og mála yfir – í anda William S. Burroughs og „cut-up“-aðferðar hans – það sem ég hef undir höndum og sé hvað gerist. Því „cut-up“-aðferðin er leið til að afhjúpa þau öfl sem stýra myndsköpun og losa sig þannig undan þeim. Hún leiðir til breyttrar meðvitundar, bæði hjá listamanninum og þeim sem horfir á myndirnar. Burroughs viðurkenndi að málarar hefðu byrjað að nota klippimyndir (kollasa) sjötíu árum áður en aðferðin varð mikilvæg í bókmenntum, en það er munur á W. S. Burroughs og fyrstu módernistunum; Burroughs hafði sérstakt sjónarhorn.

Ég sé fyrir mér hvernig sýningin gæti orðið, en gæti samt sem áður komið mér á óvart, því ekki er hægt að þvinga fram það sem er sjálfsprottið. Það sem gerist, gerist. Við verðum því bara að bíða og sjá til.

Ég þakka finnsku listastofnuninni (Finnish Arts and Culture Agency) kærlega fyrir stuðninginn við verk mín.

23. ágúst 2026 í Glauburg-Stockheim, á hátíðardegi eftir andlát Guðsmóðurinnar,

Jukka Korkeila.


Um Jukka Korkeila:
Jukka Korkeila fæddist árið 1968 í Hämeenlinna í Finnlandi. Hann býr og starfar í Berlín, Glauburg-Stockheim og Helsinki.
Korkeila hefur haldið sýningar í 26 löndum víðs vegar um heiminn.
Hann hefur haldið einkasýningar í Moderna Museet í Stokkhólmi og Norræna vatnslitamyndasafninu (Nordiska Akvarellmuseet) í Skärhamn í Svíþjóð. Árin 2014–2015 tók Korkeila þátt í fjórða tvíæringnum *Biennal del Fin del Mundo* í Mar del Plata í Argentínu.

Árin 2017–2018 tók hann þátt í sýningunum *Pleasure* í Listasafni Helsinki (HAM) og Serlachius-safninu í Mänttä. Árið 2018 voru verk eftir Korkeila hluti af sýningunni *Sanguine/Bloedrood*, sem Luc Tuymans setti upp í Samtímalistasafninu í Antwerpen (M HKA) í Belgíu. Árið 2019 hlaut Korkeila finnsku ríkisverðlaunin í myndlist. Árið 2022 tók hann þátt í fimmta tvíæringnum *Le Latitudini dell'Arte* í Palazzo Ducale í Genúa á Ítalíu, undir stjórn Pauls Thomassen.

Sama ár tók hann þátt í sýningunni *Dreamy* í samtímalistasafninu Kiasma í Helsinki, undir stjórn Max Hannus. Árið 2023 voru málverk eftir hann úr safneign Listasafnsins í Malmö sýnd á sýningunni *Happily Ever
After* í sama safni, en sýningarstjórar voru Julia Björnberg og Anna Johansson.

Árið 2024 var málverkið *Art of Falling Apart*, úr safneign Moderna Museet, sýnt á sýningunni *The Third Hand: Maurizio Cattelan and Moderna Museet's Collection* í Moderna Museet í Stokkhólmi, undir stjórn Maurizio Cattelan.
Árið 2025 hélt Korkeila umfangsmikla yfirlitssýningu, *Pimeys on täynnä valoa* (Myrkrið er fullt af ljósi), í Listasafninu í Hämeenlinna í Finnlandi undir stjórn Soile Ollikainen, en sýning með sama heiti, *Dunkelheit ist voller Licht* (Myrkrið er fullt af ljósi), stóð einnig yfir í Berlín síðastliðið haust hjá Wolf & Galentz.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page