top of page

Þrjár sýningar í Listasafninu á Akureyri

508A4884.JPG

miðvikudagur, 25. mars 2026

Þrjár sýningar í Listasafninu á Akureyri

Listasafnið á Akureyri
Kaupvangsstræti 8-12, 600 Akureyri

28.03. - 16.08. 2026

Opnun: Laugardaginn 28.mars kl 15:00.
------------
OPEN
Saga Íslands: 2. Hluti — Eiríkur Páll Sveinsson
Salur / Gallery 08

Eiríkur Páll Sveinsson (1934-2017), háls-, nef- og eyrnalæknir, reyndi að hafa yfirsýn yfir framgang lífsins og heimsins, m.a. með því að prenta út internetið í árdaga þess. Til þess að forða upplýsingum frá glötun safnaði hann þeim saman, prentaði út og lét gorma. Eftir Eirík liggja 178 hefti. Í þeim kennir ýmissa grasa. Eiríkur skrifaði þessa hugleiðingu í eitt heftið: „Þar sem ég hef gaman af skráningu og hef nægan tíma, læt ég þetta bara verða til í huganum og set það svo hér á blöðin. Sennilega á enginn eftir að lesa þetta yfir, nema ég sjálfur. Vellíðanin við þessi skrif er fyrir öllu.“ Heftin á sýningunni útbjó Eiríkur á árunum 2000 til 2017. Aðstandendur Open sýningarýmis aðlaga þessa sýningu, sem áður var sýnd í Norræna húsinu, sérstaklega fyrir sýningarsal Listasafnsins á Akureyri. Hún er unnin með góðfúslegu leyfi fjölskyldu Eiríks og í samstarfi við hönnuðinn Evu Árnadóttur, sem er eitt barnabarna hans.

Sýningarstjórar: Open sýningarými; Arnar Ásgeirsson, Örn Alexander Ámundason, Hildigunnur Birgisdóttir og Una Margrét Árnadóttir.

Open hefur unnið þessa sýningu með góðfúslegu leyfi fjölskyldunnar í samstarfi við hönnuðinn Evu Árnadóttur sem er eitt barnabarna Eiríks.

-------------
Úlfur Logason
Guð launi þér / May God Reward You
Salur / Gallery 09

Úlfur Logason (f. 1997) lærði málaralist í Kúnstakademíunni í Düsseldorf í Þýskalandi og útskrifaðist þaðan 2024. Hann býr nú og starfar í Berlín. Þetta er fyrsta einkasýning Úlfs á opinberu safni, en hann hefur tekið þátt í sýningum bæði á Íslandi og erlendis, þar á meðal í Düsseldorf, New York og París.

Í málverkum og teikningum Úlfs kannar hann evrópska listasögu, sérstaklega sögumálverkið, og notar hana til að túlka eigið umhverfi og samtímann. Titill sýningarinnar, Guð launi þér, tekur hann úr teikningu eftir Francisco Goya, þar sem sjá má naut stanga götusöngvara, líklega til dauða. Verk Goya eru einn af útgangspunktum þessarar sýningar og þá sérstaklega pappírsverk hans, þar sem frásögnum af spænskum hversdegi, kaldranalegum húmor, furðulegum allegoríum og sjokkerandi lýsingum á hernaði, morðingjum, mannáti og djöfladýrkun ægir saman. Vatnslitamyndirnar á sýningunni eru tilraun Úlfs til að sameina fjölbreyttar frásagnir úr ýmsum áttum í einn myndheim.

--------------
Valin verk fyrir sköpun og fræðslu
Hughrif – litir – form I / Impression – Colors – Forms I
Salur / Gallery 07

Með því að skoða liti og form má læra margt um myndlist. Þegar formum er raðað á myndflöt eða í skúlptúr verður listaverk til. Form geta bæði verið tvívíð og þrívíð, lífræn eða geometrísk og haft ólíka liti og áferð. Litir eru gjarnan notaðir til að vekja tilfinningar og skapa stemningu í listaverkum. Þá má einnig nota sem tákn, en misjafnt er hvaða merkingu fólk leggur í liti og þar spilar bakgrunnur stórt hlutverk auk samhengis og menningar.

Markmið sýningarinnar er að fá safngesti til að velta fyrir sér merkingu lita og forma í myndlist, út frá völdum verkum úr safneign Listasafnsins.Verkin eru fjölbreytt og unnin með ólíkum efnum og aðferðum. Safngestum er einnig boðið að taka þátt í sýningunni með því að skapa eigin verk innblásin af verkum sýningarinnar.
---------

Sýningarstjóri: Heiða Björk Vilhjálmsdóttir


Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page