top of page

Þorgerður Jörundsdóttir: Alltof mikil náttura

508A4884.JPG

fimmtudagur, 27. júní 2024

Þorgerður Jörundsdóttir: Alltof mikil náttura

Listasalur Mosfellsbæjar býður ykkur velkomin á opnun sýningarinnar "Alltof mikil náttura" eftir Þorgerði Jörundsdóttur, laugardaginn 29. júní milli kl. 14-16.

Sýningin „Alltof mikil náttúra“ er beint framhald sýningarinnar „Of mikil náttúra“ þar sem áfram er leitast við að fjalla um líffræðilega fjölbreytni náttúrunnar á tímum

hamfarahlýnunar. Við sem tilheyrum mannkyninu viljum gjarnan gleyma því að við erum hluti þessarar tegundaflóru sem byggir þessa jörð. Við erum lífverur og háð umhverfinu rétt eins og allar aðrar lífverur. Áhrif okkar á náttúruna og allt umhverfið eru nú orðin slík að talað er um mannöld.

Veðurfarsbreytingar, dauði tegundanna, og samband okkar við náttúruna í fortíð, nútíð og framtíð eru okkur afskaplega hugleikin en á sama tíma finnum við fyrir djúpri andstöðu og tregðu til gangast við sköpunarverki okkar og örlögum. Við búum í ímynduðum veruleika og við ímynduð tengsl við náttúruna. Annars vegar teljum við okkur drottna yfir náttúrunni og geta stýrt henni, en hins vegar erum við jafn ofurseld duttlungum hennar og aðrar dýrategundir.

Verkin á sýningunni eru bæði tvívíð myndverk og einnig þrívíð verk. Myndverkin eru annars vegar unnin með bleki en svo teiknað ofan í með tússi. Hins vegar eru blýantsteikningar.

Efniviðurinn er á mörkum þess að vera óhlutbundinn og fígúratívur og sóttur í margvísleg náttúruform. Verkin eru unnin í miklum smáatriðum og undir stækkunargleri. Formin eru allt frá því að vera stór og afgerandi að því að vera örsmá og vart sjáanleg nema við mikla grandskoðun.

Þrívíðu verkin eru úr fjölbreyttum efnivið, þar er notast við rekavið, gifs, leir og léreft í bland. Verkin eru sambland af þekkjanlegum og óþekkjanlegum lífrænum formum, þau eru máluð að einhverju leyti, Litavalið er einfalt hvítt með svörtu og gráu.

Þorgerður Jörundsdóttir er fædd í Reykjavík árið 1969 og stundaði nám við Menntaskólann í Reykjavík og frönskunám í Université de Caen í Frakklandi. Hún lauk námi við skúlptúrdeild MHÍ 1999 og BA í heimspeki við Háskóla Íslands 1995. Þorgerður hefur starfað við íslenskukennslu, þýðingar og ritstörf meðfram myndlistinni.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page