top of page

Þitt svar skiptir máli – Taktu þátt í mikilvægri könnun um starfsumhverfi listafólks

508A4884.JPG

föstudagur, 6. nóvember 2026

Þitt svar skiptir máli – Taktu þátt í mikilvægri könnun um starfsumhverfi listafólks

Kæra listafólk!

Könnun hefur verið send út til allra félagsmanna aðildarfélaga Bandalags íslenskra listamanna (BÍL) um starfsumhverfi,tekjur og félagslegt öryggi listafólks á Íslandi. Könnunin er unnin í samstarfi við Bandalag háskólamanna (BHM).

Ef þú hefur ekki séð könnunina í pósthólfinu skaltu leita að tölvupósti frá:

konnudur@outcomesurveys.com

Markmið könnunarinnar er að varpa ljósi á starfsaðstæður listafólks, hvernig það aflar tekna og stöðu þess hvað varðar félagslegt öryggi.

Við hvetjum allt félagsfólk innan vébanda BÍL eindregið til að taka þátt og svara könnuninni.

Hvert svar skiptir máli og stuðlar að betri yfirsýn yfir stöðu listafólks. Niðurstöðurnar verða mikilvægur grundvöllur fyrir hagsmunabaráttu okkar fyrir bættum kjörum og starfsumhverfi.

Niðurstöðurnar munu meðal annars nýtast í baráttunni fyrir hækkun og fjölgun listamannalauna, auknum styrkjum og meira afkomuöryggi listafólks. Það tekur aðeins um 15 mínútur að svara könnuninni en við mælum með að hafa skattframtalið fyrir árið 2025 opið við höndina.

Dregið verður úr hópi þátttakenda um veglega vinninga frá Sinfóníuhljómsveit Íslands, Tjarnarbíói, Listasafni Reykjavíkur og Borgarleikhúsinu, auk 50.000 kr. gjafabréfs.

Við vonum að sem flest gefi sér tíma til að svara.

ÞITT SVAR SKIPTIR MÁLI!

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page