top of page

Þar sem ljósið lifir : Úkraínskar helgimyndir í aldanna rás. 

508A4884.JPG

miðvikudagur, 7. október 2026

Þar sem ljósið lifir : Úkraínskar helgimyndir í aldanna rás. 

Listasafni Íslands, opnun föstudaginn 16 október kl 17:00 - 19:00
Sýningin stendur yfir 17.10 - 17.10. 2027

Listasafn Íslands opnar 17. október sýninguna Þar sem ljósið lifir: Úkraínskar helgimyndir í
aldanna rás, þar sem sýndar verða 32 fágætar helgimyndir úr safneign Listasafns Úkraínu í
Kænugarði. Verkin eru frá 12. öld fram á öndverða 19. öld og hafa mikið listsögulegt og
trúarlegt gildi.

Sýningin er unnin í samstarfi við Þjóðminjasafn Íslands og er liður í því að standa vörð um
menningararf Úkraínu og efla tengsl þjóðanna. Þetta er í fyrsta sinn sem þessi einstöku
listaverk eru sýnd utan heimalandsins og er sýningin afrakstur náins samstarfs Listasafns
Úkraínu, Listasafns Íslands og Þjóðminjasafns Íslands.

Sýningin stendur í eitt ár. Að henni lokinni verða helgimyndirnar áfram í varðveislu hér á
landi, þar sem öryggi þeirra verður tryggt á meðan stríðið í Úkraínu stendur yfir.
Undirbúningur verkefnisins hefur staðið í rúmt ár í samvinnu við utanríkisráðuneytið og
menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið.

„Hugmyndin að verkefninu kviknaði út frá þeirri ósk okkar að styðja við kollega okkar í
Úkraínu og tryggja um leið að menningararfur landsins sé áfram sýnilegur almenningi og
minni á hina ríkulegu menningararfleifð úkraínsku þjóðarinnar,“ segir Ingibjörg
Jóhannsdóttir, safnstjóri Listasafns Íslands.
„Við búum við þau forréttindi að lifa í einu friðsælasta landi heims og okkur langaði að rétta
starfssystkinum okkar hjálparhönd, en þau hafa unnið við afar erfiðar aðstæður síðustu ár.
Við erum þakklát fyrir að njóta fulls stuðnings stjórnvalda og Þjóðminjasafns Íslands undir
stjórn Hörpu Þórsdóttur þjóðminjavarðar.“

Flestar myndanna koma úr kirkjum þar sem þær prýddu helgimyndaþilið (íkonóstasis)
framan við altarið. Á þeim má sjá atburði úr lífi hinnar heilögu fjölskyldu, dýrlinga, postula
og staðbundinna verndardýrlinga. Saman bregða þær upp mynd af þróun úkraínskrar
kirkjulistar, allt frá býsönskum áhrifum fyrri alda til vestur-evrópskra strauma barokktímans.
Þær bera jafnframt vitni um sögu og samfélagsbreytingar í aldanna rás og um ríka hefð
úkraínskrar textíl- og skreytilistar.

„Þetta er í fyrsta sinn í sögu safnsins sem þessi verk eru sýnd erlendis og nær allar
myndirnar eru nú í fyrsta sinn utan Úkraínu,“ segir Yulia Lytvynets, safnstjóri Listasafns
Úkraínu.

Verkin voru hluti af fastasýningu safnsins sem tekin var niður árið 2022. Þau eru meðal
fremstu verka úkraínskrar listar, allt frá miðaldamyndum eftir ónafngreinda meistara til
glæsilegra barokkverka. Hver mynd segir ekki aðeins sögu úkraínskrar helgimyndalistar
heldur einnig sögu úkraínska ríkisins og safnsins okkar. Á þessum erfiðu tímum hafa
kollegar okkar rétt okkur hjálparhönd, bæði við að vernda dýrmætustu menningarverðmæti
okkar og við að kynna list úkraínsku þjóðarinnar. Við erum ríkisstjórn Íslands, Listasafni
Íslands og Þjóðminjasafni Íslands óendanlega þakklát fyrir að standa vörð um þjóðararf
Úkraínu.“
Sýningarstjóri er dr. Oleksandra Shevliuga, sérfræðingur í úkraínskri listasögu.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page