top of page

Þórunn Bára Björnsdóttir: Gróðurhula

508A4884.JPG

fimmtudagur, 14. mars 2024

Þórunn Bára Björnsdóttir: Gróðurhula

Listasalur Mosfellsbæjar opnar sýninguna Gróðurhula eftir Þórunni Báru Björnsdóttur, laugardaginn 16. mars kl. 14.

Titill sýningarinnar Gróðurhula vísar í þessu samhengi í landnemaplöntur sem festa rætur í hrjóstugri jörð. Þær styrkja vistkeðjuna og greiða götu fjölbreyttra lífvera. Þegar gróðurhula myndast heldur hún raka og næringu að plöntum og varnar hitasveiflum þannig að líf eigi möguleika á að dafna. Verkin á þessari sýningu eru ný akrílmálverk máluð með tilvísun til náttúru Íslands, aðallega á Surtsey. Við lifum á tíma hraða og áreitis. Þá er gott að staldra við og vinna úr því sem fyrir augu ber.

Þórunn Bára Björnsdóttir (f. 1950) hefur haft listsköpun að aðalstarfi í tvo áratugi og sýnt víða. Hún lauk námi við Listaháskólann í Edinborg (BAhon) og einnig við Wesleyan háskólann í Connecticut, USA (MALS). Þetta er fyrsta einkasýning Þórunnar Báru í Listasal Mosfellsbæjar.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn

SAMBAND
ÍSLENSKRA
MYNDLISTARMANNA

Hafnarstræti 16, 101 Reykjavík, Ísland

Skrifstofan er opin virka daga frá kl 12 -16

Sími/ Tel.: +354 551 1346
Email: sim@sim.is

Kt. 551283-0709

Samfélagsmiðlar

  • Facebook
  • Instagram
logo_white_edited.png

© Samband íslenskra myndlistarmanna, 2024

bottom of page