top of page

Þórdís Erla Zoëga: What Ever After

508A4884.JPG

þriðjudagur, 10. nóvember 2026

Þórdís Erla Zoëga: What Ever After

SPECTA, Peder Skrams Gade 13, Kaupmannahöfn
Opnun föstudaginn 13. nóvember kl 17:00 - 19:00
Sýningin stendur yfir 13.11 - 21.12 2026

Þórdís Erla Zoëga opnar einkasýninguna What Ever After í SPECTA gallerý í Kaupmannahöfn, föstudaginn 13. nóvember. Þetta er fyrsta einkasýning hennar hjá gallerýinu. Á sýningunni veltir Þórdís fyrir sér sambandi okkar við náttúruna, manngerð efni og hvernig við ímyndum okkur framtíðina á tímum örra tæknibreytinga.

Það sem áður tilheyrði vísindaskáldskap er orðið hluti af daglegu lífi og mörkin milli hins gervilega og náttúrulega verða sífellt óljósari. Framtíðin er ekki lengur eitthvað fjarlægt og óþekkt heldur farin að taka á sig mynd í hversdagsleikanum.

Titillinn What Ever After leikur sér að ævintýraendinum „happily ever after“ og 90´s orðatiltækinu "whatever" og vísar bæði til óvissunnar um framtíðina og ákveðins æðruleysis gagnvart henni. Kannski er framtíðin þegar komin og við einfaldlega farin að venjast henni.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page