Þórdís Erla Ágústsdóttir - Hjartaþræðir: nándin í hversdeginum,

fimmtudagur, 21. maí 2026
Þórdís Erla Ágústsdóttir - Hjartaþræðir: nándin í hversdeginum,
Ljósmyndasafn Reykjavíkur
Tryggvagata 15, Reykjavík
Opnun fimmtudaginn 21. maí kl. 16 - 18:30. Ókeypis inn og öll velkomin. Veitingar í boði.
Sigurður Gylfi Magnússon, prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands, ávarpar gesti.
Arnfríður Valdimarsdóttir, skrifstofustjóri menningarborgar, opnar sýninguna
Í ljósmyndum sínum leitast Þórdís Erla við að fanga það óáþreifanlega í daglegu lífi fólks inni á heimilum þess og á öðrum stöðum sem eru því mikilvægir.
Hún beinir sjónum að tengslum og tilfinningum á milli einstaklinga. Náttúran er órjúfanlegur hluti af umhverfinu og hefur mótandi áhrif á tilfinningalíf og gjörðir. Til að sýna hversu samofið þetta tvennt er stillir Þórdís Erla fram kraftmiklum stemningum af íslenskri náttúru innan um myndirnar af fólkinu.
Þórdís Erla hefur myndað fólkið, sem flest er henni náið eða vel kunnugt, yfir löng tímabil. Hún velur stundir úr hversdeginum, lítil augnablik sem segja stærri sögu.
Í gegnum þau mannlegu samskipti sem Þórdís Erla fangar og gerir sýnileg, beinir hún sjónum að kjarna mennskunnar — þörfinni fyrir nánd og raunveruleg tengsl í samfélagi þar sem rafræn samskipti hafa aukið einmanaleika og einangrun. Myndirnar segja sögur af ólíku fólki sem hún hefur fylgt eftir yfir löng tímabil á meðan annað birtist aðeins í einum söguþræði. Sýningin er persónuleg og hverfist um íslenskan veruleika þó að umfjöllunarefnið sé ekki einungis bundið við hann.
Aðgengi er gott að Ljósmyndasafninu. Hjálparhundar eru velkomnir í safnið. Strætisvagnar: Næstu stoppistöðvar heita Hafnarhús, Lækjartorg og Ráðhúsið (2-5 mín. gangur). Bílastæði eru við safnið og í nærliggjandi bílastæðahúsum.
