Útskriftarsýning Ljósmyndaskólans
miðvikudagur, 11. desember 2024
Útskriftarsýning Ljósmyndaskólans
Sýning á útskriftarverkum þeirra nemenda sem ljúka diplómanámi í skapandi ljósmyndun frá Ljósmyndaskólanum í desember 2024 verður opnuð í Ljósmyndasafni Reykjavíkur föstudaginn 13. desember kl. 16.
Verkin á sýningunni eru fjölbreytt, viðfangsefni nemenda mismunandi og framsetning, listræn sýn og fagurfræði ólík. Endurspegla útskriftarverk nemenda þannig gróskuna í samtímaljósmyndun og fjölbreytta möguleika sem felast í ljósmyndamiðlinum.
Að þessu sinni útskrifast fjórir nemendur: Ingunn Rós Haraldsdóttir, María Ármanns, Sigríður Hermannsdóttir og Vala Agnes Oddsdóttir. Sýningarstjóri er Katrín Elvarsdóttir.
Hver og einn nemandi verður með leiðsögn á meðan sýningunni stendur og verða kynntar á viðburðasíðu Borgarsögusafns og á Facebooksíðu Ljósmyndasafnsins.
Sýningin stendur frá 13. desember 2024 til 5. janúar 2025.