top of page

Útilistasýningin: Heimalingar 26

508A4884.JPG

fimmtudagur, 28. maí 2026

Útilistasýningin: Heimalingar 26

Sumarið 2020 bauð listakonan Guðrún Hadda Bjarnadóttir félögum úr Myndlistafélaginu á Akureyri að standa saman að útilistasýningu við Dyngjuna-listhús í Eyjafjarðarsveit.
Sýningin stóð yfir í 3 mánuði frá júní byrjun til ágústloka og voru sýnd fjölbreytt listaverk sem þoldu veður og vind íslenskt sumars. Sýningin hlaut nafnið „Heimalingar“, og ástæðan var að staðarhaldari fékk að láni 2 undurfagra heimalninga, sem tóku sig vel út á sýningarsvæðinu og glöddu sýningargesti.

Á hverju sumri síðan, hefur Hadda opnað vinnustofu sína og lánað landið í kring til sýningarhalds og nú verður opnuð 7. útilistasýningin : Heimalingar 26 - norðlenskir listamenn.
Opið verður alla daga frá 14.00-17.00 frá 30.mai - 31. ágúst.

Að þessu sinni eru 27 listamenn sem sýna :
Aðalsteinn Þórsson, Hadda, Karl Guðmundsson, Rosa Kristin Júlíusdóttir, Hrefna Harðardóttir, Arna Gudny Valsdottir, Gillian Pokalo, Guðrún Pálína Guðmundsdóttir, Þóra Solveig Bergsteinsdottir, Jonna-Jónborg Sigurðardóttir, Erwin van der Werve, Hlynur Hallsson, Tereza Kocián, Anna Þóra Karlsdóttir, Dagrún Matthíasdóttir, Brynhildur Kristinsdóttir, Elísabet Ásgríms, Ragnheiður Björk Þórsdóttir Hjördís Frímann, Kristján Helgason, Karólína Baldvinsdóttir, Vikar Mar, Anna Richardsdóttir, Wolfgang Frosti Sahr, Guðmundur Ármann, Helgi Þórs, Anna Gunnars.

Aðgangur ókeypis og allir velkomnir að njóta menningar í fagurri náttúru Eyjafjarðarsveitar.
Dyngjan-listhús er rétt áður en komið er að Grundarkirkju
Nánari upplýsingar eru á Dyngjan-listhús á FB og í síma 8998770

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page