top of page

ÚTGÁFUHÓF: Sigurður Guðmundsson: Sextet

508A4884.JPG

fimmtudagur, 29. júní 2023

ÚTGÁFUHÓF: Sigurður Guðmundsson: Sextet

Verið velkomin í útgáfuhóf Sextet, ný bók eftir Sigurð Guðmundsson, sem verður haldið föstudaginn 30. júní milli 17:00-19:00 í i8 gallerí.

Með skáldverkunum Tabúlarasa, Ósýnilega konan, Dýrin í Saigon og Musa hefur Sigurður Guðmundsson stráð óhefðbundum fræjum inn í íslenska bókmenntaflóru. Í Sextet heimsækir Sigurður gömul verk og horfir á þau frá nýju sjónarhorni. Lesandinn fær aðra sýn á verkin sem mynda nú nýja heild. Sextet er frumlegt skáldverk listamanns gegnum lífið, ástina og listina. Bókin nemur 620 blaðsíðum og sá Studio Studio um hönnun hennar. Útgefandi: Ars Longa forlag.

Sigurður mun lesa brot úr bókinni sem verður til sölu á sérstöku kynningarverði

Sigurður Guðmundsson (f.1942) er einn kunnasti listamaður Íslendinga. Hann kom fram á sjónarsviðið á sjöunda áratug síðustu aldar sem einn af stofnendum SÚM og hefur síðan þá starfað að list sinni víða um heim, lengst af í Hollandi og Kína, þar sem hann er búsettur nú. Verk Sigurðar eru margslungin og marglaga og spyrja gjarnan tilvistarlegra spurninga, en um leið er leikgleðin áberandi. Sigurður er ávallt leitandi og hættir aldrei að koma á óvart, hvort sem er í efnistökum eða útfærslu, en þó má greina sterk leiðarstef í gegnum allan hans feril.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page