Óskað eftir hugmyndum að: Tilnefningum fyrir myndlistarverðlaunin 2027

fimmtudagur, 5. nóvember 2026
Óskað eftir hugmyndum að: Tilnefningum fyrir myndlistarverðlaunin 2027
Frestur til að senda inn tillögur rennur út á miðnætti, þriðjudaginn 15. desember.
Myndlistarráð stendur að Íslensku myndlistarverðlaununum og eru þau veitt í nafni ráðsins. Markmið verðlaunanna er að heiðra myndlistarmenn á Íslandi, hvetja til nýrrar listsköpunar og efla kynningu á myndlist, innanlands sem utan.
Verðlaunin Myndlistarmaður ársins eru veitt myndlistarmanni sem þykir hafa skarað framúr með nýlegum verkum og sýningu á Íslandi á árinu 2026. Verðlaunafé er 1.5 milljón krónur.
Hvatningarverðlaun, 750 þúsund krónur, eru veitt starfandi myndlistarmanni sem nýlega hefur komið fram á sjónarsviðið og vakið athygli með verkum sínum.
Allar upplýsingar um hvernig sótt er um og hverjir sem geta tekið þátt
https://www.icelandicartcenter.is/is/frettir/oskad-eftir-hugmyndum-ad-tilnefningum-1
https://www.icelandicartcenter.is/is/frettir/auglyst-eftir-utgafum-fra-2025-2
