Ólöf Björg Björnsdóttir: Seiðr óvissunnar - Óður til mæðra

miðvikudagur, 25. mars 2026
Ólöf Björg Björnsdóttir: Seiðr óvissunnar - Óður til mæðra
Grafíksalurinn, Hafnarhús
Tryggvagata 17, gengið inn hafnarmegin
Opnun: Laugardaginn 28. mars frá kl. 13:00–17:00.
28.03 - 12.04. 2026
---------
Ólöf Björg er þekkt fyrir málverk sín þar sem mannslíkaminn er meginviðfangsefnið en hér sýnir hún líka abstraktmyndir. Þessa sýningun tileinkar hún mæðrum og fjallar á huglægan hátt um móðurhlutverkið, bæði reynsluheimi okkar og í stærra samhengi. Flestar konur þekkja þá reynslu að eignast börn og það flókna hlutverk sem þá tekur við, en við hin höfum að minnsta kost átt móður og þekkjum mæður. Þáttur mæðra í samfélaginu er svo mikilvægur að þær gegna lykilhlutverki í trúarbrögðum og goðsögnum um allan heim: Við lifum á móður jörð, tölum móðurmál og allt sem nærir og fæðir er tengt hugmyndum um mæður. Mörg af elstu listaverkum sem vitað er um eru móðurmyndir, t.d. styttan fræga sem nefnd hefur verið Venus frá Willendorf í Austurríki sem talin er 40.000 ára gömul.
Blóðmæður og mæðrun þurfa þó ekki ávallt að ganga saman og móðurhlutverk er ekki eitthvað sem prófað er í fyrirfram. Reynsla hverrar móður er einstök og hver móðir þarf að finna sína leið í þessu hlutverki. Það er eitthvað einstakt við það að bera annan líkama sem verður hluti að eigin líkama. Hvað þá að sleppa síðan takinu af þessum innri líkamanum og hleypa honum út í heiminn – að slíta á naflastrenginn í bókstaflegum og táknrænum skilningi, jafnvel þó að verkefni móðurinnar og tilfinningartengsl haldi jafnvel um óvissu skeið.
Móðurhlutverkið vafið dulúð. Mæður viðhalda mannskyninu og ættum um aldur og aldir. Þær yrkja gróskumikinn garð kynslóðanna þar sem formóðirin trónir sem ættartré og nærir nýgróðurinn. Lífið er óvissuástand og þegar mannvera verður með barni & tekur ákvörðun að ganga með það er það umbreyting: líkamlega og hugarfarslega, hvað svo sem gerist í kjölfarið. Sjálfsveran klárlega hefur einhverskonar hamskipti með taug við annan líkama um óákveðinn tíma. Markmiðið er að næra manneskju og koma til þroska. Til þess þarf móðirin að rækta með sér innsæi og óeigingirni í þvílíkum mæli að nálgast kraftaverk. Börnin sem borin eru úr líkama hennarinn í heiminn eru óvissugjöf í sjálfu sér – dans milli upprunans og þess anda og andardráttar sem ekki er hægt að festa hendur á.
Sýningin er opin fimmtudaga, föstudaga, laugardaga og sunnudaga frá kl. 14:00–17:00. Listakonan sjálf verður á staðnum á opnunartímum.
