top of page

Íslensku myndlistarverðlaunin 2024

508A4884.JPG

fimmtudagur, 14. mars 2024

Íslensku myndlistarverðlaunin 2024

Íslensku myndlistarverðlaunin fara fram í sjöunda sinn þann 14. mars næstkomandi í Iðnó. Viðburðurinn hefst með gjörningum og fordrykk kl. 19:30, athöfnin byrjar kl. 20:00. Allir velkomnir!

Veitt eru tvenn verðlaun, Myndlistarmaður ársins hlýtur eina milljón króna og Hvatningarverðlaunahafinn hlýtur 500.000 kr. Auk þess eru veittar viðurkenningar fyrir samsýningu ársins, endurlit ársins og útgáfu ársins. Upptaldir verðlaunaflokkar eru valdir af dómnefnd en auk þeirra veitir myndlistarráð einum listamanni heiðursviðurkenningu fyrir ævistarf sitt.

Að afhöfninni lokinni hefst fögnuður og forútgáfa á 4. tölublaði tímaritsins Myndlist á Íslandi. Gestum gefst kostur á að næla sér í eintak ásamt eldri tölublöðum.

Myndlistarráð stendur að Íslensku myndlistarverðlaununum. Tilgangur verðlaunanna er að vekja athygli á því sem vel er gert á sviði myndlistar en jafnframt veita einstaka myndlistamönnum mikilvæga viðurkenningu og hvetja til nýrrar listsköpunar.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn

SAMBAND
ÍSLENSKRA
MYNDLISTARMANNA

Hafnarstræti 16, 101 Reykjavík, Ísland

Skrifstofan er opin virka daga frá kl 12 -16

Sími/ Tel.: +354 551 1346
Email: sim@sim.is

Kt. 551283-0709

Samfélagsmiðlar

  • Facebook
  • Instagram
logo_white_edited.png

© Samband íslenskra myndlistarmanna, 2024

bottom of page