top of page

Íslenski bærinn - Hleðsluskólinn: Sérnámskeið í hleðslutækni dagana 17-19. júní

508A4884.JPG

þriðjudagur, 14. júní 2022

Íslenski bærinn - Hleðsluskólinn: Sérnámskeið í hleðslutækni dagana 17-19. júní

Á námskeiðinu verður farið yfir uppbyggingu veggja og húsþaka þar sem torf, grjót og mold er aðal efniviðurinn. Helstu hleðsluaðferðir verða útskýrðar og prófaðar. Einnig verða megingerðir torfstungu og ristu framkvæmdar með hefðbundnum verkfærum. Grundvallar atriði í grjóthleðslu verða einnig skoðað. Jafnframt verður leitast við að veita innsýn í hugmyndafræði og fagurfræði íslenskra torfbygginga stutt ítarlegum powerpoint fyrirlestri um íslenskan torfbæjararf.
Námskeiðið hefst upp úr hádegi 17. júní og stendur síðan frá 10:00 til 18:00 hina dagana tvo. Meginhluti námskeiðanna fer fram á í sýningarskála Íslenska bæjarins og torfbænum að Austur-Meðalholtum í Flóahreppi og í nágrenni hans. Námskeiðsgjald er að þessu sinni aðeins 12.000kr.
Hádegismatur og kaffi innifalið í gjaldi. Nauðsynleg verkfæri eru á staðnum. Gisting möguleg í torfbænum eða tjaldi, eldunaraðstaða og/eða sameiginlegur kvöldmatur. Þátttakendur skulu hafa með sér hlífðarfatnað, stígvél og vinnuhanska.

Upplýsingar og skráning: s. 694 8108 / 696 5046 islenskibaerinn@gmail.com

***** ***** *****
Hleðsluskólinn og Íslenski bærinn standa reglulega fyrir fjölbreyttum námskeiðum í íslenskri hleðslutækni. Meginhluti námskeiðanna fer fram á torfbænum að Austur-Meðalholtum í Flóa og í nágrenni hans, Þessi námskeið eru ýmist auglýst sérstaklega eða sérsniðin fyrir tiltekna hópa og fra að öllu jöfnu fram í maí/júni eða sept/okt. Á námskeiðunum er aðal áherslan á hefðbundið íslenskt hleðsluhandverk og notkun hefðbundinna verkfæra, einnig er hugmyndafræði torfbygginga krufin og hugað að fagurfræðilegum sérkennum. Í húsakynnum Íslenska bæjarins er yfirgripsmikil sýning um íslenskan torfbæjar arf og þar er einnig að finna stórt safn torfskurðar- og torfstunguverkfæra.
Fleirri hleðslunámskeið verða á dagskrá, dagsetningar tilkynntar seinna.

https://islenskibaerinn.is/hledsluskolinn/

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page