Íslensk Grafík: Málverk og Grafík - Rut Rebekka
miðvikudagur, 30. mars 2022
Íslensk Grafík: Málverk og Grafík - Rut Rebekka
Málverk og Grafík. Rut Rebekka opnar sýningu í Íslensk Grafík Laugardaginn 2 apríl kl. 14
Tryggvagötu 17 Hafnarhúsinu (inngangur hafnarmegin) Ekið Pósthússtræti, Tryggvagötu og Naustina.
Málverkin eru Olía á striga, máluð 2019 til 2022, grafíkin er olíu sáldþrykk.
Þetta er 24 einkasýning Rutar Rebekku Sigurjónsdóttur, en hún er fædd í Reykjavík 1944. Hún hefur stundað myndlist í 48 ár og hennar helstu einkasýningar hafa verið á Kjarvalsstöðum, í Hafnarborg, í Norræna húsinu, Gallerie GammelStrand Kaupmannahöfn, Hamar Kunstforening Noregi, Piteaa Kunstforening Svíþjóð og fleiristöðum. Ásamt tekið þátt í fjölmörgum samsýningum hérlendis og erlendis eins og í Beiing Kína, New york, Boston, Munchen, Heidelberg, Köln, Aarhus Kunstforening. Næstved Danmörku og fleirri stöðum.
Listnám sitt stundaði Rut Rebekka í Myndlistaskóla Reykjavíkur, Myndlista og handíðaskóla Íslands og í Skidmore Collage NY USA. Unnið í vinnustofum erlendis eins og í Danmörku. Sveaborg Finnlandi, Kjarvalsstofu París og verið gestakennari í myndlist í Skidmore Collage NY.
Sýningin er opin kl 14 til 117 fimmtudaga til sunnudaga og lýkur sunnudaginn 17 apríl kl 17.30. Allir velkomnir.