top of page

Íslensk Grafík: 20/20 Sölusýning til styrktar flóttamönnum frá Úkraínu

508A4884.JPG

þriðjudagur, 17. maí 2022

Íslensk Grafík: 20/20 Sölusýning til styrktar flóttamönnum frá Úkraínu

20/20 Sölusýning til styrktar flóttamönnum frá Úkraínu.

Helgina 20.– 22. maí mun Íslensk Grafík efna til samsýningar á grafíkverkum listamanna víðsvegar að, sem hafa tekið þátt í alþjóðlegri „ferðasýningu“ 20/20 í sýningarsal Íslenskrar Grafíkur að Tryggvagötu 17, Rvk.

Ferlið bakvið þessar 20/20 sýningar er að þeir sem tekið hafa þátt unnu grafíkverk í 25 eintökum í stærðinni 20x20 og þar blandast verkin inn í möppur með öðrum 20/20 listamönnum frá öðrum grafíkverkstæðum um allan heim.
Fær hver þátttakandi senda möppu til baka frá Hot Bed Press með 20 ólíkum verkum ásamt eintaki eftir sig. Öll verkin fara svo á Flickr síðu þeirra: (www.flickr.com/photos/hot_bed_press).
Verkin hafa einnig verið til sýnis víðsvegar um heiminn en nú gefst áhugasömum tækifæri til þess að líta listaverkin augum og kaupa ef vill. En íslenskir grafíklistamenn hafa tekið höndum saman og ákveðið að gefa verk úr sinni möppu og mun ágóðinn renna til félagsins og til flóttamanna Úkraínu .
Hvert þrykk kostar kr.5000.-

Opnun föstudag 20 mai kl 17 – 20
laugardag 21. mai 14 -17 og sunnudag 22. mai kl. 14 - 17

Íslensk Grafík
Icelandic Printmakers Association
Tryggvagata 17, hafnarmegin/harbour side
101 Reykjavik
Iceland
Opening hours: Thursday - Sunday 2-5 pm
Free entrance
http://www.islenskgrafik.is/

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page