Íris Ólöf Sigurjónsdóttir og María Þorleifsdóttir: Farvegir

miðvikudagur, 11. mars 2026
Íris Ólöf Sigurjónsdóttir og María Þorleifsdóttir: Farvegir
Grafíksalurinn, Hafnarhús
Tryggvagata 17, gengið inn hafnarmegin
Sýningartímabil: 05.03 - 22.03. 2026.
Íris Ólöf Sigurjónsdóttir og María Þorleifsdóttir bjóða þér að vera við opnun á sýningunni Farvegir í Hafnarhúsinu, Grafíksalnum, Tryggvagötu 17 ( hafnarmegin) fimmtudaginn 5. mars kl. 17:00 -19:00. Opið er fimmtudaga til sunnudaga kl. 14:00 -18:00. Sýningunni lýkur 22. mars. Öll hjartanlega velkomin.
Í hálfa öld hafa farvegir Írisar Ólafar og Maríu Þorleifsdóttur í gegnum lífið og listina legið á ólíkum slóðum. Stundum hafa þeir runnið saman, skarast, kvíslast eða tekið ólíka stefnu. Og nú mætast þeir hér í Grafíksalnum.
Íris Ólöf Sigurjónsdóttir er textílmenntuð og hefur alla tíð fengist við textíllist meðfram öðrum störfum. Hún var safnstjóri á Byggðasafninu Hvoli á Dalvík í tæp 20 ár og sá m.a. um að endurhanna allar sýningar safnsins.
Íris Ólöf hefur og haldið nokkrar einkasýningar bæði norðan heiða og í Reykjavík og tekið þátt í fjölmörgum samsýningum, s.s. með Textílfélagi Íslands þar sem hún er meðlimur og á Listasafni Akureyrar sem á verk eftir hana í safnkosti sínum. Íris Ólöf kennir textílsögu m.a. í textíldeild Myndlistaskóla Reykjavíkur
Við textílinn blandar Íris Ólöf gjarnan öðrum efnum. Hún segist hafa þörf fyrir að vinna með andstæður; Náttúrulegt/manngert, óstöðugleika/stöðugleika, takmarkanir/frelsi, norðrið/suðrið, hart/mjúkt, stórt/lítið, fíngert/gróft. „Ég vinn á vinnustofu minni að stærri verkum þar sem að ég blanda saman grjóti og fínlegum textílum. Endurnýting er mér hugleikin og það að breyta einu efni í annað”.
María er lærður félagsráðgjafi frá Osló. Samhliða starfi hefur hún lagt stund á listnám og listasögu. María tók fjölda námskeiða í Myndlistarskóla Reykjavíkur á árunum 1986-2001. Má þar nefna bæði kvöld- og dagnámskeið í leirmótun/keramikk, hluta -og model teikningu, listmálun og skúlptúr gerð. Einnig tekið vikulöng námskið í listmálun bæði á Ærö, DK og Nydalen Kuntskole, Noregi.
Veturinn 2004-2005 stundaði María eins árs dagnám við Hönnunarbraut Iðnskólans í Reykjavík.
Haustið 2007 fékk María inngöngu á eins árs Listnámsbraut við Kunsthöjskolen í Sönderborg, Danmörku. Um var að ræða fullt dagnám og var brautin takmörkuð við aðeins tólf nemendur til undirbúnings undir áframhaldandi akademiskt nám.
