top of page

Ég er hér: Alda Rose Cartwright

508A4884.JPG

fimmtudagur, 9. janúar 2025

Ég er hér: Alda Rose Cartwright

Verið hjartanlega velkomin á sýningaropnun, Ég er hér, laugardaginn 11. janúar kl. 14. í Listasal Mosfellsbæjar.

Alda Rose Cartwright opnar einkasýningu á silkiþrykk- og grafíkverkum. Yfirskrift sýningarinnar Ég er hér er mantra sem snýst um hugmyndina um að vera til staðar í augnablikinu og tengjast umhverfinu. Hægt er að öðlast þetta ástand án ásetnings í ákveðnum kringumstæðum sem fangar kyrrð tíma og rúms.

Yrkisefni verkanna er gróður og önnur náttúruleg mótíf sem virðast dansa á yfirborðinu og birtast sem táknmyndir sem marka ákveðin augnablik, staði eða andrúmsloft. Endurtekið form píramídans minna á vörðuna, haugur af steinum reist sem kennileiti eða minnisvarði sem setur mark á söguna.

Alda Rose Cartwright er fædd í Kaliforníu en búsett í dag á Íslandi. Hún útskrifaðist frá The Academy of Art University í San Francisco með BFA í grafík og málun árið 2008. Alda hefur sýnt verk sín víða, m.a. á Íslandi, í Bandaríkjunum og Evrópu.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page