top of page

Ásmundur Ásmundsson og Hannes Lárusson: EF

508A4884.JPG

mánudagur, 26. október 2026

Ásmundur Ásmundsson og Hannes Lárusson: EF

Sýningin EF opnar í Fantasíu þriðjudaginn 27. október kl. 17:00

Hér er um að ræða sýningu á nýjum verkum eftir Ásmund og Hannes, auk nokkurra verka sem eru unnin í náinni samvinnu.
Sýningin myndar eina samfellda heild þar sem reynir á breiðan þverskurð myndrænnar framsetningar; málverk, teikningar, þrívíð verk, að hluta til unnin inn í rýmið/innsetningar, tímatengd verk/athafnir, textar og ljósmyndaverk.

Nafn sýningarinnar er EF, undirtitilinn er Formfræði og myndmál. Þessi þrjú hugtök lýsa vel inntaki sýningarinnar og framsetningu. Í forgunni er spurningin um vægi, birtingaramyndir og notagildi forma og myndmáls í samtímanum.

Sýningarstjóri er Sigurjón Sighvatsson.
Í framhaldi af opnun verður umræða um sýninguna þar sem listamennirnir svara spurningum og taka þátt í hugleiðingum um sýninguna.

Verið öll hjartanlega velkomin

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page