top of page

Áslaug Íris Katrín Friðjónsdóttir opnar sýninguna "Opna" í Þulu

508A4884.JPG

fimmtudagur, 23. nóvember 2023

Áslaug Íris Katrín Friðjónsdóttir opnar sýninguna "Opna" í Þulu

Áslaugar Íris Katrín Friðjónsdóttir opnar sýningu næstkomandi laugardag, 25.nóvember klukkan 17:00 í Þulu og stendur til 23.desember.

Þetta eru splunkuný verk eftir listamanninn þar sem hún vinnur enn með sömu efni og mótíf og hún er þekkt fyrir, en þó bregður við nýjum tón og hlakkar okkur mikið til að sýna þessa sýningu. Hér að neðan er örlítill texti um Áslaugu og sýninguna Opna.

"Í öllu skapandi ferli opnum við gáttir inn í nýja heima, inn í víddir innra með okkur og í kringum okkur. Við opnum á það óþekkta, það óvænta, það sem verður til í samspili þess agaða og þess ómeðvitaða.
Á sýningunni Opna veltir Áslaug fyrir sér rými málverksins, ytra rýminu og því innra. Stóra samhengi myndflatarins og smæstu einingunum. Hvaða rými opnar verkið? Hvaða sjónarhorn veljum við okkur og hvað kemur okkur á óvart?

Við gætum verið stödd í huglægum veruleika listamannsinns, inn í líkamanum, úti í náttúrunni eða jafnvel á fjarlægum vetrarbrautum. Ef þú horfir nógu lengi gætirðu jafnvel heyrt það sem þú sérð. Litir, steinar, vatn, dúkur, blýantur og annað efni rennur saman á sama hátt og skynjunin. Andstæður verða að hliðstæðum, það línulega fer á flug og til verður leikandi hreyfing sem er bæði í myndfletinum og því nýja samhengi sem skynfærin nema."

Áslaug Íris Katrín Friðjónsdóttir (f. 1981) lauk MFA gráðu í myndlist frá School of Visual Arts í New York árið 2009 og BA gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2006. Rík efniskennd einkennir verk Áslaugar sem vinnur með óhlutbundið myndmál og leitar merkingar í ólíku efnisvali og aðferðum t.m. með teikningu í steindu yfirborði og samspili steina við aðra efnisþætti. Áslaug notast auk þess við linoleum efni og málningu við formgerð skúlptúrískra málverka sinna þar sem ferðalag augans og ólíkt sjónarhorn listamanns og áhorfanda mætist.

Áslaug hefur sýnt bæði einkasýningar og tekið þátt í samsýningum í söfnum og galleríum í Evrópu, Bandaríkjunum og Íslandi. Þar má helst nefna Stellingar I Línulegar frásagnir í Berg Contemporary, A17 í Listasafni Reykjanesbæjar, Skúlptúr Skúlptúr í Gerðarsafni og einkasýningarnar Arfur í Gallerí Þulu, Bergmál í Listval Gallerí og Skil | Skjól í Neskirkju. Fyrr á þessu ári tók Áslaug þátt í listamessunni Market í Stokkhólmi, samsýningu í sendiherrabústað Íslands í Stokkhólmi og samsýningunni Samhljómur í Sendiráði Íslands í Kaupmannahöfn. Verk eftir Áslaugu eru í eigu opinberra listasafna á Íslandi.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn

SAMBAND
ÍSLENSKRA
MYNDLISTARMANNA

Hafnarstræti 16, 101 Reykjavík, Ísland

Skrifstofan er opin virka daga frá kl 12 -16

Sími/ Tel.: +354 551 1346
Email: sim@sim.is

Kt. 551283-0709

Samfélagsmiðlar

  • Facebook
  • Instagram
logo_white_edited.png

© Samband íslenskra myndlistarmanna, 2024

bottom of page