Ásdís Mercedes Spanó: Strata

fimmtudagur, 15. október 2026
Ásdís Mercedes Spanó: Strata
Gallerí göng, Opnun föstudaginn 16. október kl 16:00 - 18:00
Sýningin stendur yfir 16.10 - 15.11. 2026
Ásdís Spanó (f. 1973) er myndlistarmaður, búsett og starfandi í Reykjavík. Hún lauk námi í myndlist frá Listaháskóla Íslands og stundaði jafnframt nám við Central Saint Martins í London og Accademia di Belle Arti í Bologna. Hún hefur einnig lokið diplómanámi á meistarastigi í hagnýtri safnafræði við Háskóla Íslands og meistaragráðu í listkennslu frá Listaháskóla Íslands.
Hún hefur sýnt verk sín á einkasýningum og samsýningum á Íslandi og erlendis. Samhliða eigin myndlist hefur hún fengist við sýningarstjórn, kennslu og ritstjórn og sinnt fjölbreyttum störfum á vettvangi íslenskrar myndlistar.
“Heiti sýningarinnar, Strata, merkir lög og vísar bæði til efnislegrar uppbyggingar málverkanna og jarðlaga. … Þræðir og lífræn form kvíslast um lagskiptan myndflöt.”
Sýningin STRATA markar upphaf nýrrar sýningastefnu í Gallerí Göngum undir stjórn Rakelar Halldórsdóttur, rekstrar- og sýningastjóra.
"STRATA
Þræðir og lífræn form kvíslast um lagskiptan myndflöt. Línur tengjast og rofna, litir
sjást í gegnum þunn lög eða hverfa undir þéttari málningu. Verkin taka á sig mynd í
samspili þess sem bætist við, er hulið og birtist að nýju.
Heiti sýningarinnar, Strata, merkir lög og vísar bæði til efnislegrar uppbyggingar
málverkanna og jarðlaga. Hvert lag hefur áhrif á það næsta. Ummerki fyrri laga lifa
áfram í áferð, litbrigðum og formum, jafnvel þegar málað hefur verið yfir þau.
Yfirborðið ber þannig með sér sögu verksins og þann tíma sem fór í að vinna það.
Myndmálið sækir meðal annars til rótarkerfa og vaxtar í tvær áttir, niður í jarðveginn
og upp að ljósinu. Form greinast og fléttast saman í net sem virðist teygja sig út fyrir
það sem sést. Nýr litur breytir vægi annarra lita og lína getur tengt saman svæði eða
rofið samfellu þeirra. Þegar málað er yfir fær það sem fyrir er nýja merkingu.
Uppbygging og rof haldast í hendur og tengjast hugmyndum um hringrás, niðurbrot
og endurnýjun.
Birta og efniskennd skapa breytilega dýpt í verkunum. Gegnsæ lög opna myndflötinn
á meðan þéttari svæði beina sjónum að áferð hans. Augað fylgir þráðum, nemur brot
úr formum og finnur þeim nýtt samhengi. Heildin verður til í þessum tengslum og
getur tekið á sig aðra mynd við hverja skoðun.
Ásdís Spanó"
Linkur á viðburðin www.asdisspano.com
