top of page

Árni Vilhjálmsson: Soldið flatur stóll og fleiri fletir

508A4884.JPG

þriðjudagur, 17. nóvember 2026

Árni Vilhjálmsson: Soldið flatur stóll og fleiri fletir

Leyni, Akureyri opnun laugardaginn 21. nóvember kl 20:00
Sýningin stendur yfir 21.11 - 02.12 2026

Listmuni sýningarinnar skortir alla dýpt og tilfinningu fyrir náttúrunni. Þeir eru ekkert að þykjast vera fjall, grasbali, himinn eða haf. Þeir eru form og litur á fleti í ramma á flötum vegg undir umferðum af málningu, en þegar betur er að gáð þá er ekkert fullkomlega flatt.
Eiginlega er ekkert bratt aðeins mismunandi flatt eins og skáldið sagði.

Í náttúrunni eru fjöllin andstæða við flatneskju. Án þeirra væri sjónarröndin bara rönd sem teygði sig út yfir allan sjóndeildarhringinn. Listmálarar hafa lengi tekið þessu uppbroti fagnandi. Þeir taka þessar mishæðir og slétta út í fleti, form og liti. Verk Árna gera gott betur en að fletja fyrirbrigði náttúrunnar út. Þau breyta fjalli í samfélag þar sem þorpsbúar setja lit sinn á umhverfið. Og liturinn væri lítils virði ef hann héti ekki neitt. 

Plastmálning í tískulitum af litakorti Slippfélagsins tengir saman náttúru og hversdagslíf þar sem misþekkt nöfn og litir skapa ósýnilega dýpt í landslaginu án þess að missa flatneskjuna úr málverkinu.

Sérstakar þakkir: Kjartan Hallur Grétarsson, Lísandra Týra Jónsdóttir, Guðmundur Óskar Sigurmundsson, Vala Pálsdóttir, Rúnar hjá Slippfélaginu og Vikar Mar.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page