top of page

Ár•farvegur - samsýning

508A4884.JPG

fimmtudagur, 11. janúar 2024

Ár•farvegur - samsýning

Verið velkomin á fyrstu sýningu Þulu 2024, Ár•farvegur, sem að opnar á laugardaginn 13.janúar klukkan 17:00. Listsamennirnir sem að sýna verk sín eru Kristinn E. Hrafnsson, Anna Maggý, Hrafnkell Sigurðsson og Vikram Pradhan.

Sýningin Ár•farvegur býður gestum að stíga inn í heim þar sem hið stóra og smáa mætist, í tíma og rúmi hinnar mannlegu og jarðlegu æfi. Árþúsundir og augnablik tala saman og vekja upp spurningar um samband mannsins við jörðina sem hann býr á. Æfiskeiðin ólík en þó mætumst við öll í sekúndubrotum þar sem við eigum samleið.

Í hinum ýmsu miðlum kanna listamennirnir hvað það að er að deila tímanum með umhverfi okkar, tíma sem er afstæður og hægt er að horfa á sem línulaga eða margbreytilegt fyrirbæri sem dansar um í beygjum og sveigjum. Árin eru eins og á sem skapar farvegi í lífi mannsins og kvíslast í gegnum sögu og kynslóðir þar til við rennum saman hafsjó eilífðarinnar.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page