Ályktun SÍM og Listfræðafélags Íslands vegna ráðningar safnstjóra Listasafns Íslands
miðvikudagur, 7. september 2022
Ályktun SÍM og Listfræðafélags Íslands vegna ráðningar safnstjóra Listasafns Íslands
Ályktun Sambands íslenskra myndlistarmanna (SÍM) og Listfræðafélags Íslands
Samband íslenskra myndlistarmanna og Listfræðafélag Íslands vekja athygli á að samkvæmt
myndlistarlögum er Listasafn Íslands höfuðsafn á sviði myndlistar. Safnið skal vera miðstöð faglegrar
umræðu, varðveislu og rannsókna á sviði myndlistar.
Tilfærsla safnstjóra Listasafns Íslands í stöðu þjóðminjavarðar er stjórnvaldsákvörðun. Degi eftir að
tilkynnt var um hana var staða safnstjóra LÍ auglýst með þriggja vikna umsóknarfresti. Gert er ráð
fyrir að nýr safnstjóri taki við rúmum mánuði eftir að umsóknarfrestur rennur út. Ákvörðunin lýsir
metnaðarleysi, skorti á fyrirhyggju og skilningsleysi þegar kemur að hlutverki safnstjóra Listasafns
Íslands.
SÍM og Listfræðafélag Íslands vilja ekki gera lítið úr mikilvægi leiðtogahæfni stjórnenda, en vekja
athygli á mögulegum áhrifum þess á starfsemi sérhæfðra stofnana ef yfirmenn þeirra búa ekki yfir
tilskilinni sérfræðiþekkingu á starfssviði viðkomandi stofnunar. Safnstjóra Listasafns Íslands er m.a.
ætlað að stjórna listaverkainnkaupum, sýningarhaldi, fræðslu, útgáfu og þjónustu og skipuleggja
rannsóknir. Safnstjóri Listasafns Íslands þarf að hafa yfirgripsmikla þekkingu á íslenskri myndlist.
Leiðtogahæfni ein og sér dugar skammt til að sinna þessum verkefnum.
SÍM og Listfræðafélag Íslands gera því alvarlegar athugasemdir við þær áherslur sem eru lagðar í
auglýsingu um stöðu safnstjóra Listasafns Íslands og þann skamma fyrirvara sem tilvonandi safnstjóri
hefur til að taka við embættinu. Það er mikilvægt að slík embætti séu auglýst með góðum fyrirvara
og ráðning tilkynnt nokkrum mánuðum áður en viðkomandi tekur við stöðunni. Félögin skora á
ráðherra að endurskoða starfshætti sína og taka ekki ákvarðanir sem kasta rýrð á starfsemi og ásýnd
helstu menningarstofnana þjóðarinnar.
Fyrir hönd SÍM og Listfræðafélags Íslands
Anna Eyjólfsdóttir - formaður SÍM og Margrét Elísabet Ólafsdóttir - formaður Listfræðafélags Íslands