Á Akureyrarvöku, laugardaginn 29. ágúst kl. 15, verða fjórar sýningar opnaðar í Listasafninu á Akureyri:

miðvikudagur, 26. ágúst 2026
Á Akureyrarvöku, laugardaginn 29. ágúst kl. 15, verða fjórar sýningar opnaðar í Listasafninu á Akureyri:
Charlotte Søeborg Ohlsen BERGMÁL UMBREYTINGAR: ÚT Í GARÐ 29.08.2026-07.03.2027 Listasafnið á Akureyri og Lystigarður Akureyrar
Charlotte Søeborg Ohlsen (f. 1970) er danskur myndlistarmaður og hönnuður sem lauk námi í grafískri hönnun frá Konunglegu listaakademíunni í Kaupmannahöfn. Í verkum sínum rannsakar hún mörk myndlistar, hönnunar og handverks og þar gegnir pappír lykilhlutverki, bæði sem efniviður og aðferð. Á undanförnum árum hefur hún þróað listaverk í málmi og unnið staðbundnar innsetningar þar sem náttúra, arkitektúr og umhverfi verða virkir þátttakendur í merkingarmyndun verkanna.
Listsköpun Charlotte einkennist af nákvæmri efnismeðferð og rannsókn á umbreytingu. Hvert verk sprettur úr einni örk sem er klippt og brotin án líms þannig að einfaldur flötur verður að margbrotnu formi. Skordýr eru leiðarstef í verkum hennar og vísa jafnt til viðkvæms jafnvægis vistkerfa sem sífelldra hringrása vaxtar, umbreytingar og hnignunar. Þegar þessi form eru yfirfærð í messing eða ál heldur umbreytingin áfram, því yfirborð málmsins tekur smám saman breytingum undir áhrifum loftslags og tíma.
Sýningin Bergmál umbreytingar: Út í garð er staðbundin innsetning sem spannar tvö ólík rými: Listasafnið á Akureyri og Lystigarð Akureyrar. Hún er hugsuð sem eitt samfellt verk sem leiðir áhorfandann frá innra rými safnsins og út í stóran garðinn. Í safninu birtast skordýr úr svörtum pappír sem virðast hafa numið staðar á gluggum, veggjum og í rýminu sjálfu. Í Lystigarðinum taka sams konar form á sig nýja mynd sem skúlptúrar úr messingi og áli, þar sem náttúran verður virkur þátttakandi í þróun verkanna og þau eru á víð og dreif. Veður, birta og árstíðir móta yfirborð málmsins og gera tímann að sýnilegu efni. Þannig verður ferð áhorfandans milli safns og garðs hluti af verkinu sjálfu, þar sem mörk milli byggingar og landslags, náttúru og menningar, hins brothætta og hins varanlega verða óljós.
BALDVIN RINGSTED HVERSDAGSLAND 29.08.2026-07.03.2027 Salur / Gallery 09
Baldvin Ringsted (f. 1974) er fæddur og uppalinn á Akureyri, en býr og starfar í Skotlandi. Hann vinnur með ýmis efni og miðla, þ.m.t. málverk, prent, skúlptúra og vídeó. Baldvin lauk mastersgráðu frá Glasgow School of Art í Skotlandi 2007 og nam þar áður við Myndlistaskólann á Akureyri og Lahti Polytechnic School of Art í Finnlandi. Hann hefur sýnt verk sín víða um heim og hlaut nýlega verðlaun frá The Scottish Landscape Awards.
Á þessari sýningu vinnur Baldvin með nýja seríu þar sem hann notar fundin útsaumsverk til að skapa nýtt landslag. Hann hefur heillast af „vúdúkrafti“ hversdagslegra hluta og hvernig þeir bera með sér þunga minninga. Í hverju fundnu verki felast gleymdar minningar úr húsum sem hafa gengið í arf, verið seld eða endurnýjuð. Baldvin setur þessi brot saman, gefur þeim nýtt líf og leyfir þeim að vaxa upp úr auðninni. Útkoman er ógnvekjandi, kunnuglegt – þó fjarlægt – og súrrealískt landslag.
ENE ZACHARIASSEN / PÁLL GUÐMUNDSSON / MARÍA TÓRGARÐ Í SNERTINGU 29.08.2026-07.03.2027 Salur / Gallery 08
Þrír listamenn mætast á samsýningu og vinna með náttúruna sem efnivið, innblástur og samtal. Páll á Húsafelli mótar verk sín í stein og málar á svell, efni sem bera með sér sögur landsins og anda þess sem býr í hverjum æðastreng og steinblæ. Lene Zachariassen, norsk að uppruna en búsett á Íslandi, vinnur í samhljómi við náttúruleg efni þar sem mjúkir þræðir og áferð verða að samtali milli handar og lífræns efnis. Í myndbandi Maríu Tórgarð við tónlist &Bartal fléttast hreyfing, hljóð, vatn og ljós í ljóðræna hugleiðingu um tilvist og uppruna.
Öll þrjú vinna með anda náttúrunnar af djúpri næmni og virðingu. Í sameiningu skapa þau bæði sýnilega og ósýnilega tengingu við náttúruna, en ekki síst viðkvæma og lifandi minningu um hvernig listin getur brúað bilið milli mannsins og umheimsins – á milli landa, ólíkra menningarheima og umhverfis.
Sýningarstjóri: Þórarinn Blöndal.
VALIN VERK FYRIR SKÖPUN OG FRÆÐSLU HUGHRIF - LITIR - FORM II 29.08.2026-07.03.2027 Salur 07
Með því að skoða liti og form má læra margt um myndlist. Þegar formum er raðað á myndflöt eða í skúlptúr verður listaverk til. Form geta bæði verið tvívíð og þrívíð, lífræn eða geometrísk og haft ólíka liti og áferð. Litir eru gjarnan notaðir til að vekja tilfinningar og skapa stemningu í listaverkum. Þá má einnig nota sem tákn, en misjafnt er hvaða merkingu fólk leggur í liti og þar spilar bakgrunnur stórt hlutverk auk samhengis og menningar.
Markmið sýningarinnar er að fá safngesti til að velta fyrir sér merkingu lita og forma í myndlist, út frá völdum verkum úr safneign Listasafnsins. Verkin eru fjölbreytt og unnin með ólíkum efnum og aðferðum. Safngestum er einnig boðið að taka þátt í sýningunni með því að skapa eigin verk innblásin af verkum sýningarinnar.
Sýningarstjóri: Heiða Björk Vilhjálmsdóttir.
https://www.facebook.com/events/1542768570723815
https://www.facebook.com/events/1069193595770157
https://www.facebook.com/events/1367490938858244
https://www.facebook.com/events/2590037774789333
