top of page
Anchor 1

Félagsaðild

Samband íslenskra myndlistarmanna (SÍM) var stofnað árið 1982.  SÍM er hagsmuna og stéttarfélag liðlega 950 starfandi myndlistarmanna.  SÍM samanstendur af eftirtöldum aðildarfélögum og félagsmönnum þeirra ásamt félögum með einstaklingsaðild að SÍM:

Félag íslenskra samtímaljósmyndara (FÍSL) Félag íslenskra myndlistarmanna (FÍM), Íslensk GrafíkLeirlistarfélag ÍslandsMyndhöggvarafélagið í Reykjavík (MHR), Myndlistarfélagið á Akureyri og Textílfélagið.

 

INNTÖKUSKILYRÐI

 

Til að hafa rétt til inngöngu í Samband íslenskra myndlistarmanna þarf umsækjandi að hafa lokið 3 ára BA námi í myndlist eða hafa aðra sambærilega menntun samkvæmt yfirlýsingu viðkomandi skóla.

 

Einnig hafa þeir sem hafa lokið 4 ára námi frá Myndlistarskólanum á Akureyri og útskrifast með Diplóma rétt á 

inngöngu í SÍM.

 

Að öðrum kosti þarf umsækjandi að uppfylla fjögur af neðangreindum skilyrðum:

 

1. Önnur menntun í myndlist (að lágmarki samtals 2 ár) staðfest með yfirlýsingu viðkomandi stofnunar.

 

2. Ein eða fleiri einkasýningar í opinberum sýningarstöðum. Staðfesting fylgi.

 

3. Þátttaka í alþjóðlegri sýningu, samsýningu styrktri af opinberum aðilum eða ekki færri en fimm samsýningum öðrum.
Staðfesting fylgi.

 

4. Verið falið af dómnefnd að vinna að listskreytingu á opinberum vettvangi. Staðfesting fylgi.

 

5. Eiga minnst eitt verk í opinberri eigu, keypt af viðkomandi safnráði eða matsnefnd. Staðfesting fylgi.

 

6. Hafa hlotið opinberan styrk eða starfslaun. Staðfesting fylgi.

 

 

Fríðindi

 

Félagsskírteini SÍM: Skírteinið er sambland af innlendu og alþjóðlegu skírteini (IAA).  Skírteinið veitir frían aðgang að fjölmörgum listasöfnum hér heima og erlendis.

Leiðbeiningar með uppsetningu félagsskírteina

Listi yfir söfn og stofnanir sem veita félagsmönnum SÍM frían aðgang 

 

Afsláttur: Gegn framvísun félagsskírteinis SÍM er hægt að fá afslátt hjá mörgum verslunum og þjónustufyrirtækjum sem versla með myndlistarvörur.

 

Verslunin A4  veitir félagsmönnum eftirfarandi afslætti af vörum sínum:

  • Pappír – 15% afsláttur

  • Litir og málning – 10%

       

Slippfélagið veitir félagsmönnum SÍM 20% afslátt af myndlistarvörum og sérkjör á málningarvörum framleiddum af Slippfélaginu gegn framvísun skírteinis.

Skrifstofuvörur veita félagsmönnum 10% afslátt gegn framvísun skírteinis.

Verslunin Kísill ehf veitir félagsmönnum 10% afslátt af Acrystal, sem er steypuefni acrystal.com , og Zhermach sem er tvegga þátta silicone til mótagerðar zhermach.com

 

Hornið Veitingahús veitir félagsmönnum SÍM 2 fyrir 1 tilboð á pizzum og pasta réttum, alla daga til kl.16 gegn framvísun skírteinis

 

Arkiv.is : Félagsmenn geta skráð sig á Arkiv.is, gagnagrunn um og fyrir íslenska myndlistarmenn.

 

Sýningarsalur SÍM:  Félagsmenn geta sóttu um að sýna í salnum gegn vægu gjaldi.

 

Vinnustofur SÍM:  SÍM er með um 200 vinnustofur fyrir félagsmenn.

 

Artótek:  Félagsmenn SÍM geta verið með verk sín til sölu í Artóteki Borgarbókasafnsins.

 

Berlín:  Félagsmenn geta sótt um dvöl í gestavinnustofu SIM í Berlín, gegn vægu gjaldi.

Aþena: Félagsmenn geta sótt um dvöl í gestavinnustofu SIM í Aþenu, gegn vægu gjaldi.

 

Myndstef:  Félagsmenn verða sjálfkrafa meðlimir í Myndstef.

 

Muggur:  Félagsmenn sótt um dvalarstyrki til verkefna erlendis.

 

Orlofshús: Félagsmenn geta sótt um aðgang að orlofshúsum hér og erlendis:

https://rsi.is/gestaibudir/island/ 

https://resartis.org/listings/?fwp_listing_country=iceland

 

Félagsgjald SÍM er frádráttarbært frá skatti.

 

Félagsgjald

Félagsgjald er 24.000 kr. á ári og er frádráttarbært frá skatti. 

Veittur er 25% hjónaafsláttur, ef báðir aðilar eru félagsmenn í SÍM
Félagsmenn 70 ára og eldri greiða hálft félagsgjald.

Öryrkjar greiða hálft félagsgjald

bottom of page