Sem bjargi væri létt af brjósti hennar?
lau., 09. apr.
|SÍM Gallerý
SÍM Gallerý /// Hafnarstræti 16 /// 7. - 28. apríl.
Dagsetning & tími
09. apr. 2022, 11:00 – 28. apr. 2022, 11:00
SÍM Gallerý, Hafnarstræti 16, Reykjavík, Iceland
Um viðburðinn
Boulder of her chest?
Ósk Gunnlaugsdóttir painting exhibition at SÍM Gallerý Hafnarstræti 16, // 7. -28. april.
Verkin á sýningunni takast á við þrívídd viðfangsefnis sem gæti verið tekið úr náttúrunni. Form skapað úr flötum,
hornum og bogum sem eiga sér sinn stað í marglaga tilvistum huga og samfélags. Bjarg, klettur, steinvala og sandkorn í senn. Bjarg, farg, þungi og samfélagsleg pressa á að passa í form, fara ekki út fyrir línur skapaðar af mönnum.
Viðfangsefni verkanna byggir á hugmyndum heimspeki og fagurfræði kenningar um hlutmiðaða verufræði (e. Object
Oriented Ontology) sem gengur út á að allt sé hlutur og að ekki sé gerður mikill greinarmunur hugveru og hlutveru.
Að munurinn á sköpuðum steini listamannsins, þeim sem ullu örlögum kvenna sem voru grýttar til dauða eða
þeirra sem sagðir voru í maga Rauðsokka sé ekki sá að einhverjir séu skapaðir úr efni og aðrir ímyndaðir heldur að form þeirra sé mismunandi.