top of page

fim., 08. jún.

|

Borgabókasafnið Spögninni

Lingam K & María Esthela: Kristallinn er ekki hér

Lingam K & Maria Esthela, gestalistamenn hjá Sambandi íslenskra myndlistarmanna (SÍM), kynna til leiks sýninguna Kristallinn er ekki hér, sem haldin er á Borgarbókasafninu Spönginni. Sýningaropnun kl. 16 fimmtudaginn 8. júní.

Lingam K & María Esthela: Kristallinn er ekki hér
Lingam K & María Esthela: Kristallinn er ekki hér

Time & Location

08. jún. 2023, 16:00 – 22. jún. 2023, 16:00

Borgabókasafnið Spögninni , Spöngin 41, 112 Reykjavík, Ísland

About the event

Lingam K & Maria Esthela, gestalistamenn hjá Sambandi íslenskra myndlistarmanna (SÍM), kynna til leiks sýninguna Kristallinn er ekki hér, sem haldin er á Borgarbókasafninu Spönginni.

Á sýningunni verða meðal annars seríur af sólmyndum (cyanotypes) og járnskúlptúrum, en verkin eru unnin erlendis og á Korpúlfsstöðum, þar sem þau Lingam og Maria eru með gestavinnustofu. Í verkum sínum sækja þau í íslenskan efnivið og skoða sérstaklega sjónræna eiginleika efnis fengnu úr náttúrunni og hvernig ljós og skuggar vinna með efnisvalinu.

Kristallinn er ekki hér, gefur okkur innsýn inn í hverfulleika fíngerðs lífs í gegnum linsu og ljós.

----

Lingam K hefur sérstakan áhuga á sundrun tímans og ósögðum sögum. Hann fangar og augnablik með því að vefa saman og túlka djúpar og ríkulegar sögur, sem birtast áhorfandanum svo sem tímabundið vegglistaverk.

Í gegnum ljósmyndir sínar tekur hann á sig hlutverk sjónræns mannfræðings, skoðar og rannsakar menningu, menningararf og jökulfyrirbæri.

Lingam notast við tækni sem kallast á ensku cyanotype. Þetta er 19. aldar ljósmyndatækni þar sem sólarljós framkallar myndir á bláan pappír. Með þessari tækni fangar Lingam dýpt, áferð og tíma. Ljósnæm sölt cyanotype pappírsins mynda kröftug form og línur sem minna á fegurð, kyrrð og depurð jökulsins.

----

María Esthela frá Honduruas og Kanada, er sjálflærð í myndlist. Hún notast við rannsóknir, hugleiðslu, hreyfingu og þversagnir í listsköpun sinni. Verk hennar eru mótuð af menningu hennar og reynslu af einhverfu. Hún blandar saman litrófinu á milli hins óskilgreinda, afstæða og fáránlega.

Hún hefur þróað með sér óhlutstætt tungumál sem tengir saman ýmis mynstur fengin úr vísindum, heimspeki, náttúrunni og því óþekkta. Með verkum sínum leitar hún eftir því að kalla fram tilfinningarlegt þyngdarafl og líkamlegt þyngdarleysi, með því að teikna spyrjandi línur sem stíga yfir mörk skynseminnar.

Facebook viðburður. 

Share this event

SAMBAND
ÍSLENSKRA
MYNDLISTARMANNA

Hafnarstræti 16, 101 Reykjavík, Ísland

Skrifstofan er opin virka daga frá kl 12 -16

Sími/ Tel.: +354 551 1346
Email: sim@sim.is

Kt. 551283-0709

Samfélagsmiðlar

  • Facebook
  • Instagram
logo_white_edited.png

© Samband íslenskra myndlistarmanna, 2024

bottom of page